Höfum áhrif og kjósum

Fréttir|10. desember 2021

Lára Guðrún Agnarsdóttir, grunnskólakennari í Austurbæjarskóla og frambjóðandi til varaformanns Kennarasambands Íslands, skrifar.

Kæru kennarar, nú fer að líða að lokum þessara kosninga. Tækifærið til að hafa áhrif á hver verður næsti varaformaður Kennarasambands Íslands lýkur á mánudaginn kl 14. Það er búið að vera mjög skemmtilegt og lærdómsríkt að taka þátt í þessar kosningabaráttu.

Ef ég verð sá frambjóðandi sem fæ brautargengi til að starfa sem varaformaður þá heiti ég því að vera til staðar fyrir alla kennara og stjórnendur á öllum skólastigum.

Við þurfum að vinna áfram að því að bæta aðbúnað og kennsluumhverfi í skólum landsins. Bekkir geta verið mjög krefjandi þó að við séum ekki endilega með marga nemendur í bekk. Í skóla fyrir alla eru nemendur alls konar. Og það sem okkur vantar í dag eru fleiri bjargir og úrræði fyrir þessa nemendur. Nám kennaranema þarf að vera þannig að þeir fái ítarlegri menntun varðandi nemendur með frávik hvort sem þau eru líkamleg eða andleg.

Við þurfum að gera starfið okkar sýnilegra og að rödd okkar fái að heyrast. Þó að formaður og varaformaður KÍ semji ekki um kaup og kjör kennara þá er hægt að hafa áhrif á annan hátt með því að tala upp starfið okkar, tala máli okkar við ráðamenn þjóðarinnar og þeirra sem setja lög og reglugerðir og gæta þess ef við getum haft áhrif á að það komi kennarar að öllum ákvörðunum sem varðar okkar starf og starfsumhverfi.

Vonandi nýta sem flestir kosningarétt sinn og kjósa.

Með bestu kveðju,

Lára Guðrún Agnarsdóttir