Höfnum afnámi áminningarskyldu

Fréttir|20. mars 2026
Myndherferd

Verði af afnámi áminningarskyldu á íslenskum vinnumarkaði er um að ræða eina mestu réttindaskerðingu sem um getur. BSRB, KÍ og FíH hafa hrundið af stað herferð til að mótmæla áformum stjórnvalda af krafti.

Kennarasambandið, BSRB og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hrinda í dag af stað herferð gegn fyrirhuguðu afnámi áminningarskyldu á íslenskum vinnumarkaði. Afnámi áminningarskyldu er harðlega mótmælt af félögunum þremur. 

Fjármálaráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi til laga þar sem kveðið er á um afnám áminningarskyldu. Verði af afnámi áminningarskyldu er um að ræða eina stærstu réttindaskerðingu sem ráðist hefur verið í gagnvart opinberu starfsfólki. 

Þetta myndi draga verulega úr starfsöryggi ríkisstarfsmanna og þess ber að geta að sveitarfélög hafa kallað eftir sambærilegum breytingum sem gætu haft víðtæk áhrif á starfsfólk um allt land. 

Kennarasambandið mótmælti áformum ríkisstjórnarinnar harðlega þegar frumvarpið var í samráðsgátt. „Ríkisstjórnin hefur hvorki verið í samráði við KÍ né önnur heildarsamtök launafólks vegna þeirra. KÍ fordæmir slík vinnubrögð og samráðsleysi og ætla má að ólöglegt sé að skerða réttindi með þessum hætti," segir meðal annars í umsögn KÍ. 

Starfsöryggi í hættu

Áminningarskylda hefur það hlutverk að tryggja að starfsfólk fái tækifæri til að bæta ráð sitt áður en til uppsagnar kemur. Hún er mikilvæg vörn gegn geðþóttaákvörðunum, misbeitingu valds og óréttlæti á vinnustöðum.

Verði áminningarskyldan afnumin gætu stjórnendur sagt upp starfsfólki án þess að veita því tækifæri til úrbóta. Að mati KÍ, BSRB og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eykur það verulega líkur á ósanngjörnum og tilhæfulausum uppsögnum.

Enginn varaventill til staðar

Formenn KÍ, BSRB og FíH skrifa grein á Vísi þar sem þau segja líkurnar á óréttlátum, ósanngjörnum og tilhæfulausum uppsögnum aukast verulega verði áminningarskyldan afnumin. 

„Stjórnendur hjá ríkinu hafa nú þegar fulla heimild til að bregðast við ef starfsfólk er ekki að standa sig í vinnu. Að halda öðru fram er beinlínis rangt. Það er sanngjörn regla að fólki sé gefið tækifæri til að bæta úr áður en því er sagt upp. Verði áminningarskyldan afnumin verður enginn slíkur varaventill lengur, segir í grein formannanna. 

Krafan einföld: frumvarpið verði dregið til baka

Kennarasambandið, BSRB og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga krefjast þess að frumvarp fjármálaráðherra verði dregið til baka. Félögin þrjú vilja með herferðinni, sem nú fer af stað, beina því til stjórnvalda að vinna frekar að því að bæta starfsaðstæður, draga úr álagi og tryggja að hið opinbera geti haldið í hæft starfsfólk. Löngu tímabært sé að styrkja ráðningarvernd launafólks og færa vinnumarkað hér á landi nær því sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum. 

Tengt efni