Hlutverk tónlistarskóla í skóla framtíðar

Fréttir|8. janúar 2014

Málstofa um „Hlutverk tónlistarskóla í skóla framtíðarinnar“ verður haldin í samstarfi Félags tónlistarskólakennara, Listaháskóla Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga föstudaginn 24. janúar 2014 á milli kl. 9:45-15:00 í Hannesarholti, Grundarstíg 10, 101 Reykjavík

KL. 9:45-12:00

Fyrri hluti málþingsins er í formi stuttra framsöguerinda (10 mínútur) þar sem eftirfarandi aðilar velta fyrir sér og ræða „hlutverk tónlistarskóla í skóla framtíðarinnar“.

  • Benedikt H. Hermannsson, tónlistarmaður og meistaranemi við Listaháskóla Íslands
  • Hildur Jóhannesdóttir, skólastjóri Dalskóla í Úlfarsárdal
  • Ragnhildur Jónsdóttir, fræðslustjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar
  • Guðni Franzson, Tóneyjarjarl - Tóney ehf.
  • Edda Valsdóttir, skólastjóri Leikskólans Fögrubrekku
  • Laufey Kristinsdóttir, tónlistarskólakennara og meistaranemi við Listaháskóla Íslands
  • Kristín Valsdóttir, deildarstjóri listkennsludeildar Listaháskóla Íslands
  • Gylfi Gunnarsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Seltjarnarnesi
  • Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir, lektor í tónmennt og forstöðumaður Rannsóknarstofu í tónlistarfræðum
  • Sigurður Halldórsson, fagstjóri meistaranáms í Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi og Skapandi tónlistarmiðlunar í Listaháskóla Íslands
  • Árni Sigurbjarnarson, skólastjóri Tónlistarskóla Húsavíkur

Hádegisverður

KL. 12:45-15:00

Sævar Kristinsson, stefnumótunarráðgjafi, stýrir málstofu þar sem lagt verður út frá framsöguerindum. Hugmyndin er að fundarmenn fari á flug og ræði þá möguleika sem í tónlistarskólakerfinu liggja. Dregnar verða saman þær hugmyndir sem fram koma á fundinum og varpað geta ljósi á það hvernig fundarmenn sjá framtíð tónlistarskóla fyrir sér sem hluti af heildstæðu kerfi menntunar og menningar.
Skráning fer fram í gegnum netfangið sigrun@ki.is eða í síma 595-1111 fyrir 22. janúar nk. Þátttökugjald er 6.000 kr. og greiðist við skráningu á reikning Kennarasambands Íslands: 516-26-9297 kt. 501299-3329. Vinsamlegast setjið „nafn þátttakanda og FT“ sem skýringu á greiðslu.

Athugið að málstofan er öllum opin.

Tónlistarskólar á Íslandi standa á sterkum stoðum þrátt fyrir niðurskurð undangenginna ára. Það er meðbyr með listgreinum sem sýnir sig í auknum skilningi á gildi lista og aðferðum listfræðslu. Gæði menntakerfa eru mest þar sem listum og menningu er gert hátt undir höfði og sérþekking úti í samfélaginu er virkjuð, samkvæmt skýrslum frá UNESCO.
Tónlistarskólar eru miðstöðvar sérþekkingar og mikilvæg uppspretta í þróun menntakerfa á 21. öld í anda heildtækrar hugsunar. Færð eru rök fyrir því að listir séu öflugasta tækið í skólastarfi til að stuðla að alhliða færni og þroska á öllum skilningarvitum nemandans. Hér má benda á þann samhljóm sem má finna í hugmyndafræði nýrrar menntastefnu og starfi tónlistarskóla.