Hlutverk foreldra, nemenda og kennara

Fréttir|11. maí 2015

Lára Guðrún Agnarsdóttir skrifar

Hvert er hlutverk og hver er ábyrgð foreldra, nemenda og kennara í menntun þeirrar kynslóðar sem nú gengur í gegnum skólakerfið?

Spurningin hér að ofan er stór og viðamikil og eins og með allar slíkar spurningar eru svörin ekki einföld, skýr og nákvæm heldur fara eftir gildismati og hugmyndum þeirra sem um hana fjalla. Þó er væntanlega hægt að vera sammála um ákveðin grundvallaratriði. Til dæmis þau að nemendur séu í aðalhlutverki og finna þurfi leiðir sem komi þeim sem best til undirbúnings fyrir framtíðina, þ.e.a.s. búi þau undir þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi eins og fram kemur í grunnskólalögum.

Ein leið til að hugsa um þetta er að skipta ábyrgðinni upp og reyna að átta sig á hvað við viljum. Viljum við að nemendur búi við sjálfræði eða samábyrgð? Með sjálfræði er átt við að nemendur beri ábyrgð á eigin námi, eins og svolítið er í tísku að tala um núna. En er það raunhæft? Atli Harðarson heimspekingur orðar þetta ákaflega vel þegar hann segir:

„Getur hugsast að sumir sem tala um ábyrgð nemenda á eigin námi meini að nemandinn einn beri alla ábyrgð á námsgengi sínu og kennarar hans séu „stikkfrí“? Ég vona ekki. Ég vona að þeir sem tala mest um að nemendur verði að bera ábyrgð á eigin námi hafi einhverja aðra hugmynd um ábyrgð en þessa sem ég kenni við sjálfræði. Að mínu viti er þessi hugmynd afar varhugaverð bæði vegna þess að það er svo auðvelt að nota hana til að afsaka ábyrgðarleysi kennara og skólayfirvalda og vegna þess að hún fær fólk til að líta á skóla sem þjónustufyrirtæki fremur en mennta- og uppeldisstofnun. (Í þessari fullyrðingu felst engin andúð á þjónustufyrirtækjum, aðeins sú skoðun að uppeldis- og menntastofnanir verði að bera meiri ábyrgð á skjólstæðingum sínum en fyrirtæki á borð við banka, ferðaskrifstofur eða veitingahús.)“

Það er því að mínu viti tómt mál að tala um að nemendur beri einir ábyrgð á námi sínu. Við verðum því að vinna eftir því góða hugtaki samábyrgð. Það merkir að allir í samfélaginu bera ábyrgð. Svona eins og máltækið segir: Það þarft heilt þorp til að ala upp barn.

Ábyrgð foreldra

Þetta merkir líka að við getum ekki látið nemendum það eftir að ákveða hvað og hvort þeir læra. Við berum sem kennarar ábyrgð á því að mennta nemendur og finna þeim nám við hæfi. Við erum sérfræðingarnir. Þetta verðum við þó að gera í samvinnu við foreldra og nemendur með því að vinna með þeim að skipulagningu náms og kennslu. Ekki með því að foreldrar eða nemendur ákveði hvað þeir vilji gera heldur þurfum við sem sérfræðingar að gera þeim grein fyrir hvað gert er og hvers vegna. En við þurfum líka að hlusta á þá og nýta þeirra góðu hugmyndir. Foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum, þ.m.t. að þeir sinni námi eins vel og þeim er unnt, nemendur bera ábyrgð á námi sínu og kennarar bera ábyrgð á að mennta nemendur sem best. Þegar allir vinna saman gengur auðvitað best eins og allir hljóta að vera sammála um.

Enginn er stikkfrí

Ef hins vegar illa gengur eins og stundum er þá þarf samfélagið allt að bregðast við og gera allt sem hægt er. Þar bera foreldrar og nemendur þó að mínu mati mesta ábyrgð. Það er hlutverk foreldra að nemandi sinni sínu námi sem og skólagöngu vel. Stundum hefur þetta þó einhvern veginn alfarið skrifast á kennarana – þeir hafi ekki kennt nemendum nógu vel. Það er hins vegar ákaflega ódýr skýring. Kennari með nemanda sem mætir illa og sinnir illa heimanámi getur átt mjög erfitt með að breyta því nema með hjálp foreldra þó hann sé allur af vilja gerður. Í því tilfelli bera foreldrar höfuðábyrgð. Þetta er hins vegar undantekning því í flestum tilfellum vilja allir það sama, það sem kemur nemendunum best. Það þýðir að enginn getur verið stikkfrí. Hvorki foreldrar, nemendur eða kennarar.