Hlekkur á beina útsendingu Hvað lærum við af COVID-19?

Fylgist með málþingi KÍ, á netinu, milli 15 og 17 í dag.
Kennarasamband Íslands efnir til málþings þar sem fjallað verður um lærdóminn sem draga má af skólahaldi í skugga COVID-19.
Málþingið verður í beinni útsendingu á vefnum, fimmtudaginn 20. ágúst klukkan 15 til 17.
Ýttu hér til að horfa á málþingið
Upplegg málþingsins
Ljóst er að heimsfaraldurinn hafði margháttuð áhrif á skólastarf á öllum skólastigum. Þátttaka í lærdómssamfélagi hvort sem það er í leik-, grunn-, framhalds- eða tónlistarskóla er það sem líf barna og ungmenna hverfist að miklu leyti um og því urðu breytingar á lífi þeirra miklar þegar ekki var hægt að ganga að þessum föstu punktum í tilverunni.
Svo hljóðar upplegg málþings sem Kennarasamband Íslands ætlar að efna til í ágúst. Á málþinginu er ætlunin að kennarar, skólastjórnendur og skólafólk horfi inn á við og leitað verður svara við eftirfarandi spurningum.
En hvað lærum við skólafólkið af ástandinu? Hvernig breyttist námsumhverfi barna og ungmenna þegar börnum í leikskólum fækkaði mjög, skólaganga grunnskólabarna um allt land varð mjög breytileg og nám í tónlistar- og framhaldsskólum færðist á rafrænt form?
Urðu upplýsingatækni og tæknibreytingar sá aflvaki velmegunar og velferðar sem við óskum að fylgi fjórðu iðnbyltingunni?
Hefur skólafólk fengið aukna hæfni til að vinna þvert á ólík svið, leita nýrra lausna, gagnrýna og taka virkan þátt í lærdómssamfélaginu?
Málþingið verður haldið rafrænt fimmtudaginn 20. ágúst, frá 15:00 til 17:00.
Dagskrá
- Kl. 15:00 Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ
- Kl. 15:30 Guðlaugur Viktorsson, skólastjóri Tónlistarskóla Eyjafjarðar
- Kl. 15:45 Katla Ketilsdóttir, grunnskólakennari í Dalvíkurskóla
- Kl. 16:00 Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ
- Kl. 16:15 Jónína Einarsdóttir, leikskólastjóri Stakkaborgar
- Kl. 16:30 Unnar Þór Bachmann, framhaldsskólakennari, Fjölbrautaskólanum við Ármúla
- Kl. 16:40 Huginn Freyr Þorsteinsson, heimspekingur
- Kl. 17:10 Áætluð fundarlok
Málþinginu verður streymt úr Stórholti, sal Kennarasambands Íslands.