Hjörtu kennara slá meira og meira í takt

Fréttir|7. janúar 2020

Sigrún Grendal, formaður FT, á að baki langan og viðburðaríkan feril í Kennarahúsinu.

Sigrún Grendal hefur gegnt formennsku í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum í tvo áratugi og árin þar á undan sat hún í stjórn félagsins. Sigrún er með lengstan starfsaldur formanna í Kennarahúsinu og óhætt að fullyrða að hún hefur frá fyrstu tíð verið vakin og sofin yfir málefnum tónlistarskólakennara, tónlistarnáms og kannski ekki síst framgangi kennarasamtakanna. Skólavarðan settist niður með Sigrúnu í tilefni tímamótanna.

„Það er merkilegt að líta til baka og sjá hvert lífið hefur leitt mann. Ég var ung að árum þegar ég var nokkuð viss um að ég vildi verða píanókennari. Veturinn þegar ég var í tíunda bekk sagði ég ömmu minni, sem ég bjó þá hjá, frá þessum áformum. Hún sat með prjónana, eins og svo oft, og tók vel í hugmyndina en sagðist þó alltaf hafa haldið að ég yrði lögfræðingur eða læknir. Sennilega hafði amma eitthvað til síns máls, að minnsta kosti varðandi lögfræðina, því réttlætiskennd hefur alltaf verið rík í mínu fari og má segja að hún hafi leitt mig inn í félagsstörfin. Þetta með lækninn á líka við að því leyti að velferð barna hefur alltaf verið mér hjartans mál,“ segir Sigrún þegar hún er spurð um hvernig þetta hafi allt saman byrjað.

Sigrún hóf kennsluferilinn í Tónlistarskóla Kópavogs að loknu námi, þá 24 ára.

„Ég var búin að kenna í tónlistarskólanum í eitt ár og var að búa mig undir mitt annað kennsluár þegar ég stóð frammi fyrir því að mér fannst hafa verið að mér vegið af stjórnendum skólans í tilteknu máli. Fyrir mig var það heilmikið átak að kalla eftir fundi með stjórnendum, ég átti ekki auðvelt með að tala og mitt tjáningarform var í gegnum tónlistina. En ég fór á fundinn og ekki löngu síðar kom Kristín Stefánsdóttir, samkennari minn í tónlistarskólanum og núverandi formaður sjúkrasjóðs KÍ, að máli við mig og spurði hvort ég væri ekki til í að gefa kost á mér í stjórn FT,“ segir Sigrún og bætir við að Kristín hafi kennt sér margt og sé félagsmálajaxl sem hafi lagt ótrúlega mikið af mörkum í þágu stéttarinnar og tónlistarfræðslu. Hún hafi meðal annars verið í ritstjórn fyrstu samræmdu aðalnámskrár tónlistarskóla og víli ekki fyrir sér að takast á hendur hin erfiðustu störf.

Sigrún tók Kristínu á orðinu og gaf kost á sér til stjórnarsetu í FT. Þetta var árið 1995.

„Það má segja að réttlætiskenndin hafi leitt mig inn í starfið. Ég á mjög erfitt með að láta óréttlæti óátalið og það hefur á ákveðinn hátt verið mitt leiðarljós frá upphafi samhliða þeirri einörðu sannfæringu sem ég hef fyrir margþættu gildi tónlistarnáms.“


Fjórum árum síðar bauð Sigrún sig fram til formanns FT. Sigríður Sveinsdóttir, sem hafði gegnt formennsku á árunum 1988 til 1999, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. „Framboð til formanns félagsins var mikil áskorun fyrir mig en á sama tíma toguðu félagsmálin svo mjög í réttlætistaugina að það var ekki aftur snúið.

„Mér fannst Kennarasambandið spennandi vinnuumhverfi og þá fyrst og fremst sem þessi umgjörð og stoð varðandi öll kjara- og réttindamál, en á þessum tíma var brekkan fram undan í kjaramálum æði brött hjá kennurum og skólastjórnendum í tónlistarskólum. Ég fann líka hvað kennarahjartað er stór hluti af mér og þegar ég hugsa til baka þessi 25 ár þá fyllist ég þakklæti yfir að hafa fengið að leggja mitt af mörkum í starfi fyrir þessa grundvallarstofnun sem Kennarasambandið er.“
Sigrún segir það hafa verið afar ánægjulegt að taka þátt í þróun Kennarasambandsins frá fyrstu tíð. „Það er gott að sjá hve hjörtu kennara slá alltaf meira og meira í takt – á sífellt fleiri sviðum. Mér finnst það bæði virðingarvert, merkilegt og gríðarlega mikilvægt.“

Litlu málin eru stór

Þegar Sigrún er spurð út í stóru málin á síðustu 20 árum svarar hún um hæl: „Þegar ég leiði hugann að þessu þá rek ég mig strax á það að ég hugsa líklega ekki á þessum nótum. Fyrir mér eru nefnilega litlu málin, sem mér finnst strax rangnefni, þau stóru. Lítil mál geta verið risastór og þar á ég við alls kyns mál sem koma inn á mitt borð, flókin og viðkvæm einstaklingserindi, sem geta skipt viðkomandi félagsmenn mjög miklu máli. Í mínum huga eru það ekki síður hin stóru mál.“


Sigrún segir jafnframt að málefni félagsins séu margvísleg og að umfangi séu sum þeirra risavaxin.

„Í þessu samhengi er vert að draga fram þann veruleika sem við búum við, það er að viðgangur tónlistarskólakerfisins og þróun tónlistarfræðslu á Íslandi eru að mjög miklu leyti undir stéttinni sjálfri komin og við sjálf þurfum að draga þennan vagn. Í vinnunni minni, hér á skrifstofunni, þykir sjálfsagt mál að hlutir séu uppfærðir í takt við tímann, hér er bankað reglulega upp á og hlutir eins og Windows-stýrikerfið, og annar hugbúnaður sem ég kann ekki að nefna, er uppfærður og svo framvegis.

Til að viðhalda tónlistarskólakerfinu þarf á sama hátt að uppfæra ýmislegt í okkar stýrikerfi og hugbúnaði en róðurinn þar er bara umtalsvert þyngri en hér á skrifstofunni. Hér erum við að tala um nokkuð þekkt stef í skólasamfélaginu og á ekki að þurfa að fara mörgum orðum um mikilvægi þess fyrir þróun skólastarfs,“ segir Sigrún og bætir við að heildarlöggjöf, sambærileg þeirri sem aðrar skólagerðir hafa, sé grundvallaratriði fyrir viðhald tónlistarskólakerfisins.

Hún segir jafnframt nauðsynlegt að kennarastarfið í tónlistarskólum fái sömu viðurkenningu í formi leyfisbréfs og þau kennarastörf sem unnin eru í öðrum skólastofnunum.

Það er okkur tónlistar­kennurum mikið hjartans mál að efla trú á hve tónlistin er merkileg gjöf og það er okkar hlutverk að sjá til þess að fleiri og fleiri geti nýtt sér hana.

„Ég tel þetta munu skipta sköpum um hvort okkur tekst að viðhalda starfsstéttinni og ég vil leyfa mér að segja að nýliðunarvandinn sé hvað mestur í okkar röðum innan KÍ. Kennaranám og nýjar menntunarkröfur, í samræmi við Bolognasamkomulagið, fela í sér uppfærslu sem að okkar mati er lífsnauðsynleg í þessu samhengi, ekki með ósvipuðum hætti og til dæmis að endurskoðun á aðalnámskrá er nauðsynlegur hlekkur í okkar gangverki, þar sem við viljum öll hafa fagmennskuna í fyrirrúmi og gerum kröfu um síkvika starfs- og skólaþróun.“

Sigrún segir FT hafa unnið statt og stöðugt að þessum málum í gegnum árin. „Þó mér hafi stundum fundist hjólin snúast fullhægt þá er ég, einhvern veginn, alltaf bjartsýn og finnst okkur miða í rétta átt. Þar á Kennarasambandið, og hvernig það er að þróast, stóran hlut að máli.“

Allt er þegar þrennt er

Síðastliðið vor fékk félagið langþráð viðbrögð frá menntamálaráðherra við umleitunum og áskorunum um að brýn málefni stéttarinnar verði sett á dagskrá í ráðuneytinu.

„Við fögnum því að það hafi farið inn í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að vinna við endurskoðun á aðalnámskrá tónlistarskóla og endurskoðun á lagaramma tónlistarskóla eigi að fara fram á næstu tveimur árum.

Þetta verður þá í þriðja skiptið í minni formannstíð sem formleg vinna fer af stað við endurskoðun á lagaramma tónlistarskóla. Árið 2013 náði vinnan það langt að tillaga að frumvarpi til laga um tónlistarskóla var sett í opið samráðsferli á vef ráðuneytisins. Ég er bjartsýn á að í þessari þriðju atrennu munum við ná til lands,“ segir Sigrún.

„Við munum leggja allt okkar af mörkum í þessari vinnu og gerum kröfu um að nýr rammi verði með þeim hætti að við getum enn betur sinnt starfi okkar en áður, að tónlistarnámið verði betur hluti af skólasamfélaginu og almennri menntun og við getum í sameiningu stigið ölduna inn í framtíðina.“

Tónlistarskólakerfið, sem telur yfir áttatíu skóla, er mikilvægur hluti af okkar menntakerfi. Sigrún segir flesta sammála um að menntun sé víðtækt samvinnuverkefni sem varði okkur öll. Mikilvægt sé að við horfum á þróun menntunar og menntakerfisins með opnari og heildstæðari hætti til framtíðar.

„Þau mál sem ég nefndi hér áðan sem eru mikilvæg fyrir viðhald tónlistarskólakerfisins eru einnig, og ekkert síður, lykillinn að því að tónlistarskólarnir geti verið enn virkari þátttakendur í þróun samfélagsins og hvort sem er á sviði menntunar, menningar og lista – í samræmi við þeirra skilgreinda hlutverk. Þau fela í sér margvíslegar hindranir sem gera það að verkum að við, og þá sérstaklega börn og ungmenni, förum á mis við margt af því sem tónlistarskólarnir geta lagt til þessa samstarfsverkefnis.


Við sem þjóð erum mjög stolt af því hvað okkur hefur gengið ótrúlega vel í boltanum og þá gjarnan með vísan til þess hvað við erum fámenn þjóð. Eitt af því sem rætt er um að eigi þátt í þeirri velgengni er áherslan á samvinnu og liðsheild – við hefðum t.d. væntanlega ekki náð sama árangri ef við hefðum á einhvern hátt fjötrað hornamennina í handboltanum.

Á sama hátt á umgjörðin í skólasamfélaginu að styðja við og ýta undir samspil stofnana og hrinda því úr veginum sem getur blokkerað mikilvægar stoðsendingar eða haldið hornamanni á bekknum,“ segir Sigrún.

Þannig telur FT það ávinning fyrir þróun menntakerfisins í heild að störf tónlistarskólakennara byggi á sambærilegri viðurkenningu og er að finna hjá öðrum skólagerðum.

„Framkvæmdin styrkir samstarfsgrundvöll tónlistarskóla við aðrar skólagerðir, eykur sveigjanleika og flæði kennara milli skólastiga og styður stefnu um aukinn fjölbreytileika, skólaþróun og gæðanám fyrir alla. Framkvæmdin er til þess fallin að efla samstarf og samvirkni milli tónlistarskóla og annarra skóla og stækka kjarna lærdómssamfélagsins.“

Við viljum alltaf efla okkur

Um fimmtíu manns frá Norðurlöndunum og Eistlandi sátu tveggja daga ráðstefnu Samtaka norrænna tónlistar- og listaskóla (Nordisk musik- og kulturskole union eða NMKU) undir lok síðasta mánaðar. Þar var meðal annars velt vöngum yfir stöðu og hlutverki tónlistarskólakerfisins í mennta- og menningarstefnu framtíðar, sem og á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar, og einnig fjallað um rannsóknir og þátt þeirra í þessu samhengi öllu.
„Það að við skyldum vera þarna samankomin að tala um tónlistarnám í þessu samhengi var mjög gefandi, í takt við tímann og mikilvægt innlegg inn í framtíðina. Það er líka hollt að máta sig við kollega í öðrum löndum; fólk sem hefur áþekkt leiðarljós og við en er samt einhvern veginn allt öðruvísi,“ segir Sigrún og bætir við að það hafi verið sérlega ánægjulegt að formaður KÍ, Ragnar Þór Pétursson, skyldi flytja inngangsávarp á ráðstefnunni.

„Í mínum huga er það ágætis tákngerving og til marks um þá þróun innan KÍ sem hægt og bítandi hefur fært aðildarfélögin nær hvert öðru.“

Fram kom á ráðstefnunni að óendanlega oft hefur verið reynt að greina hið norræna módel en enn hafi menn ekki fundið hina einu réttu niðurstöðu. „Í grófum dráttum má segja að Norðurlöndin séu afar ólík en það sem tengir okkur er norræna velferðin; sú hugsun að vilja bjóða fólki, ungu fólki, besta svæði í heimi til að búa á.“

Sigrún segir gildi samstarfs og samtals meðal norrænna kennara og stjórnenda í tónlist og listum mikið, en þar komi fram ný þekking og nýjar hugmyndir. „Ég tek heils hugar undir orð Kjartans Más Kjartanssonar, bæjarstjóra í Reykjanesbæ, sem sagði að við gætum og ættum að miðla og nýta okkur reynslu annarra í miklu meira mæli á þessu litla skeri. Þannig kæmu fram nýjar hugmyndir, ný sýn og sjónarhorn sem vert væri að gefa gaum.

Á ráðstefnunni var því velt upp af hverju við viljum fleiri rannsóknir og voru menn nokkuð sammála um að það væri vegna þess að við viljum jú bæta okkur, að það þjónaði þeim tilgangi að geta gert hluti betur. Allar hendur fóru á loft þegar salurinn var spurður: „hver vill breytingar?“ en viðbrögðin voru á aðra lund þegar spurt var: „hver vill framkvæma breytingarnar?, hver vill leiða breytingarnar? og hver vill bera ábyrgð á breytingunum?“ segir Sigrún og bætir við að öllum þessum spurningum eigi Kennarasambandið að svara játandi.

Jákvæð áhrif tónlistarnáms

Sigrún segir hlutverk tónlistarnáms í menntastefnu vanmetið. „Rannsóknir sýna að ein skilvirkasta leiðin til að vinna að alhliða persónuþroska einstaklinga er í gegnum listir og skapandi starf og jafnframt sýna rannsóknir fram á að gæði almennrar menntunar eru hvað mest þar sem listum og menningu er gert hátt undir höfði í menntakerfi þjóða (UNESCO 2006).“

Sigrún segir nýlegar rannsóknir, sem dr. Helga Rut Guðmundsdóttir kynnti nýverið, sýna fram á að tónlistarnám meðal ungra barna hjálpi þeim meðal annars að einbeita sér.

„Heilinn þroskast og stækkar með mælanlegum hætti. Það hefur verið sýnt fram á að þótt barn stundi tónlistarnám í aðeins eitt ár þá séu áhrifin á heilann varanleg, og á þetta víst líka við um fullorðna. Þá hefur einnig komið fram að tónlistarnemendur standa sig yfirleitt líka vel í öðru námi og hafa þá sumir sagt að þetta séu bara krakkar sem hafi allt með sér. En í tengslum við þetta hefur komið í ljós þegar gerður er samanburður á börnum sem ýmist stunda tónlistarnám eða ekki að þau áhrif sem tónlistarnám hefur eru mest hjá þeim börnum sem lakast stóðu í byrjun. Þá er rétt að halda því til haga að það kom einnig fram hjá Helgu Rut að rannsóknir sýna að þeir hlutar heilans sem tónlistarnám þroskar eru þeir sömu og reynir á í akademísku námi.

Eftir að hafa hlustað á hennar fyrirlestur þá finnst manni það eiginlega ábyrgðarhluti að halda tónlistarnámi frá börnum og þá einnig með vísan til ákvæða barnasáttmálans um rétt barna til þátttöku í menningu og listum.“

Að sögn Sigrúnar er yfirskrift stefnu félagsins frá árinu 2013 „Tónlist er fyrir alla“ en samtalið um hvert umboð tónlistarskólanna væri var heilmikil áskorun fyrir stéttina. „Erum við fyrir alla eða eigum við bara að mennta þá sem ætla að leggja fyrir sig tónlist – sem er svipað hinu upphaflega umboði? Við vitum að þessir nemendur koma til okkar. En er okkur, sem búum í norrænu velferðarsamfélagi og erum hluti menntakerfisins, stætt á að athuga ekki með hina sem banka ekki á dyr tónlistarskólanna að fyrra bragði?“

Tónlistin er merkileg gjöf

Svæðisþing tónlistarskóla hafa verið haldin á hverju hausti frá árinu 2003. Umgjörð og innihald þeirra hefur einkennst af metnaði og ástríðu fyrir mikilvægi tónlistarnáms og starfi tónlistarkennara. Þau hafa verið haldin á sex stöðum á landinu og ávallt verið kallað eftir samtali við tónlistarkennara á hverjum stað.

Við eigum að vera í forystu og axla ­okkar ábyrgð á þróun skólakerfisins.

„Við héldum fyrsta svæðisþingið árið 2003. Það heppnaðist vel og úr varð að þessi þing hafa verið fastur liður á hverju hausti. Á upphafsárum mínum í starfi fékk ég oft þá spurningu hvort það væru í raun til sérstakir tónlistarskólar. Þetta þótti mér skrýtin spurning en satt að segja er ekki svo langt síðan að ég var spurð að þessu síðast. Svæðisþingin eru mikilvæg þegar kemur að því að búa til tengslanet milli félagsmanna, auka samlegðina og finna að við erum öll á sameiginlegri leið að ákveðnu marki. Þá hafa svæðisþingin líka nýst vel þegar kemur að samtali við skólasamfélagið og raunar samfélagið allt. Við höfum til dæmis fengið fulltrúa menntamálaráðuneytis og sveitarfélaganna til að eiga við okkur samtal og þá meðal annars í þeim tilgangi að þeir átti sig á þessari miklu auðlind og perlu sem tónlistin er. Það er okkur tónlistarkennurum mikið hjartans mál að efla trú á hve tónlistin er merkileg gjöf og það er okkar hlutverk að sjá til þess að fleiri og fleiri geti nýtt sér hana.“

Sigrún segir svæðisþingin alltaf faglega spennandi viðburði. „Það er svo gaman að taka samtal við félagana og fleiri um faglegu málin og velta vöngum yfir þróuninni í okkar ranni. Þannig erum við í raun að næra okkur sjálf með því að skoða ríkjandi strauma og fylgjast með öllu sem er að gerast í okkar eigin kerfi og utan þess. Ég hef verið talsmaður þess að Kennarasambandið veiti skólamálahlutanum í starfsemi sambandsins enn meira rými og mér finnst við vera á þeirri braut. Við eigum að vera í forystu og axla okkar ábyrgð á þróun skólakerfisins.“

 

Viðtalið við Sigrúnu Grendal birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2019.