Hjartað slær á Flúðum

Fréttir|15. ágúst 2023

Flúðir eru sá staður þar sem Orlofssjóður KÍ hefur komið upp flestum húsum. Flúðir eru enda vinsælar meðal félagsmanna KÍ.

Orlofssjóður KÍ hefur byggt upp flest af sínum húsum á Flúðum og þar á sjóðuirnn sér lengsta sögu. Húsin eru öll í tveimur kjörnum; Ásabyggð og Heiðarbyggð.

Fyrstu fimm húsin í Ásabyggð voru byggð í kjölfar úrgöngu KÍ úr BSRB 1986 og þeim fjölgaði nokkuð hratt næstu árin. Í dag eru þrettán hús í kjarnanum sem hafa nýst félagsfólki vel í gegnum tíðina. Elstu húsin voru rifin árið 2017 og ný og betri hús byggð. Þau sem elst eru núna muna fífil sinn fegri og verður farið í andlitslyftingu á þeim á þessu og næsta ári.

Það var svo árið 2002 sem fyrstu sex húsin í Heiðarbyggð voru tekin formlega í notkun. Hin sjö bættust svo fljótlega við. Enn á eftir að byggja á nokkrum lóðum sem sjóðurinn hefur fest kaup á. Húsin, sem voru teiknuð af Albínu Thordarson arkitekt, hafa vakið athygli fyrir glæsileika og fallega hönnun.

Svæðið

Það er mikil lukka fyrir KÍ að hafa fjárfest í eignum á vinsælasta ferðamannasvæði Íslands og njóta félagar nálægðar við fjölbreytta þjónustu sem byggst hefur upp á svæðinu með fjölgun erlendra ferðamanna. Sumt af því er á Flúðum sjálfum, eins og sveppabistroið og Gamla Laugin, að ógleymdum eþíópíska veitingastaðnum Minilik.

Þegar farið er í bústað á Flúðum liggur vel við að heimsækja frægustu áfangastaði landsins, Gullfoss og Geysi. Það getur verið hálfgerður troðningur á þessum stöðum á daginn, en að kvöldi til er hægt að upplifa staðina í fámenni og þeirri kyrrð sem fylgir oft íslenskum sumarkvöldum.

 

Þessi umjölllun var birt í Ferðablaðinu, 1. tbl. 2023.