Hjartað í kennslunni

Fréttir|27. maí 2014

Halla Kjartansdóttir, framhaldsskólakennari og sviðsstjóri hugvísindasviðs Menntaskólans við Sund, segir ómetanlegt að sýna nemendum traust, beina sjónum að námsferlinu sjálfu og gefa nemendum tækifæri til að tjá sig um námið og námsefni. Halla fjallar um þetta efni í nýjum vikupósti á vefsíðu FF.

Halla, sem tilheyrir hópi innan MS sem kenndur er við starfendarannsóknir eða „Action Research“, segir að frá því hún hóf að rýna á markvissan hátt í starf sitt hafi hún lagt sig eftir að safna alls kyns gögnum frá nemendum, svo sem svörum þeirra við opnum spurningum um námsefnið og kennsluna.

„Þannig skapaðist rými til frjálslegri umræðu um námið og kennsluna en áður hafði tíðkast og með því að safna markvisst saman viðhorfum, hugmyndum og skoðunum nemenda fékk ég nýtt sjónarhorn á kennsluna sem hefur breytt ýmsu bæði í kennslu og námsmati, skrifar Halla meðal annars í vikupóstinum.

Nemendur hafi jafnvel fengið tækifæri til að semja prófspurningar sem hafa verið notaðar í krossaprófum og þannig fengið aukna hlutdeild í kennslunni. Halla segir nemendur hafa orðið virka þátttakendur í kennslunni og hún hafi um leið fengið betri tilfinningu fyrir námshópnum hverju sinni.