Hjálpræðisherinn fær jólakortastyrk KÍ

Fréttir|22. desember 2021

Kennarasamband Íslands styrkir Hjálpræðisherinn um 350 þúsund krónur. Styrkurinn er veittur í stað þess að senda jólakort.

Jólakortastyrkur KÍ rennur að þessu sinni til Hjálpræðishersins. Kennarasambandið hefur um langt árabil ekki sent jólakort heldur hefur sambandið þess í stað látið fé af hendi rakna til stofnana, samtaka og félaga sem vinna að velferð barna og ungmenna.

Vegna kórónuveirufaraldursins var ákveðið að senda Hjálpræðishernum gjöfina og sagði Hjördís Kristinsdóttir, svæðisforingi og flokksleiðtogi Hjálpræðishersins í Reykjavík, styrkinn koma sér vel. Færði hún KÍ góðar þakkir fyrir hlýhuginn.

Hjálpræðisherinn vinnur ávallt að því að stuðla að velferð barna og ungmenna. Hjördís segir þar megi nefna aðstoð við heimanám barna tvisvar í viku. Hún segir mörg börn nýta sér þetta, einkum börn af erlendum uppruna, og algengt sé að lestur sé æfður og unnið að íslenskuverkefnum með börnunum. Þá er boðið upp á samverustundir fyrir börn og foreldra, gæðastundir eins og Hjördís orðar það, sem enda með heitri máltíð.

Börn og ungmenni eru velkomin alla miðvikudaga í afþreyingu og heita máltíð. Þá er ótalið að í hverju hádegi koma ríflega 200 manns og þiggja hádegisverð af hernum.

Því miður varð að slá árlegt jólaboð Hjálpræðishersins af þetta árið. Hjördís segir að þess í stað muni börnin koma á aðfangadag og fá bæði gjafir og matarpakka. Um 150 börn höfðu skráð sig í jólaboðið.

Þá veitti Hjálpræðisherinn 130 börnum úr Fossvogsskóla og kennurum aðstoða svo hægt væri að hefja skólastarf síðasta haust. Húsnæðisvandi hefur hamlað starfsemi Fossvogsskóla en skólabyggingin reyndist ónothæf vegna myglu.

Kennarasambandið óskar Hjálpræðishernum gleðilegrar hátíðar. 

 

Vefsíða Hjálpræðishersins