Hittumst á rauðum sokkum 1. maí

Fréttir|29. apríl 2025

Stöðugt þarf að standa vörð um mannréttindi – bakslags gætir í jafnréttismálum, segir í sameiginlegri tilkynningu frá fulltrúaráði verkalýðshreyfingarinnar í Reykjavík í tilefni af baráttudegi verkalýðsins.

Á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí á hverju ári söfnumst við saman, fögnum áfangasigrum verkalýðshreyfingarinnar og leggjum fram kröfur okkar til að móta framtíðarsýn um það samfélag sem við viljum búa í - og þeirra sem á eftir okkur koma. Í tilefni af Kvennaári 2025 munu konur taka yfir sviðið í baráttudagskrá stéttarfélaga um land allt.

Við í samtökum launafólks höfum tekið höndum saman við samtök kvenna, femínista, fatlaðs fólks og hinsegin fólks og lýst því yfir að árið 2025 sé Kvennaár þar sem sérstök áhersla er lögð á upprætingu kynbundins ofbeldis og launamunar kynjanna. Þrátt fyrir að margt hafi breyst til batnaðar undanfarna áratugi er jafnréttisbaráttunni ekki lokið. Hér á landi ríkir meira launamisrétti en í löndunum sem við berum okkur helst saman við og ofbeldi gegn konum er útbreitt. Við erum líka minnt á um þessar mundir að stöðugt þarf að standa vörð um mannréttindi – bakslags gætir í jafnréttismálum.

Konur taka yfir sviðið um land allt

Í Reykjavík mun tilvísun í 1. maí 1970 setja sterkan svip á gönguna. Sá dagur markaði upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar þegar konur á rauðum sokkum mættu í kröfugöngu verkalýðsins með risastóra Venusarstyttu og lögðu fram kröfur sínar um kvenfrelsi. Fjölmiðlar sögðu frá því að Rauðsokkahreyfingin hefði borið styttuna í óþökk fulltrúaráðs verkalýðshreyfingarinnar og nokkuð stapp var um hvort þær fengju að taka þátt í göngunni. Eftir miklar samningaviðræður fengu þær á endanum að ganga aftast. Líklega grunaði engan þá að Rauðsokkahreyfingin ætti eftir að breyta sögu tuttugustu aldarinnar. Nú, 55 árum síðar, býður fulltrúaráð verkalýðsins í Reykjavík konum á rauðum sokkum að ganga fremst í kröfugöngunni á Kvennaári 2025. Á útifundinum á Ingólfstorgi mun fundarstýra, ræðufólk, tónlistarfólk og táknmálstúlkur vera konur og þá munu Rauðsokkur stíga á svið og segja nokkur orð.

Konur munu einnig kveða sér hljóðs víðar en í Reykjavík. Hringinn í kringum landið taka konur sér stöðu fremst í baráttudagskrám stéttarfélaganna í tilefni dagsins. Þær sjá um hátíðarræður, fundarstjórn, tónlist, skemmtiatriði, fánaburð, sýningahald, veitingar og fjölbreytta skipulagningu. Kvennakórar brýna raust sína víða og konur stilla saman strengi sína í fleiri en einum skilningi og sameinast gegn bakslagi í jafnréttisbaráttunni sem nú á sér stað.

Við hvetjum öll til að sýna samstöðu í verki og taka þátt í kröfugöngu eða skipulagðri dagskrá samtaka launafólks um allt land.

Gleðilegan baráttudag þann 1. maí næstkomandi.

 

Tilkynningin birtist fyrst á Vísi.