Hinsegin börn og bakslag

Fréttir|8. ágúst 2025
Pistill

„Krafan um að allir nemendur, líka hinsegin nemendur, upplifi öryggi í skólanum er óhagganleg.“ Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber jafnréttissérfræðingur skrifar í tilefni af Hinsegin dögum.

Þessa dagana virðist stuðningur við hinsegin samfélagið áþreifanlegur; fyrirtæki flagga regnbogafána, breyta litum merkja sinna og prestar setja upp stólu í regnbogalitum svo eitthvað sé nefnt – en er allt sem sýnist?

Með breyttum pólitískum áherslum í heiminum og öfga hægri sveiflu virðist sem hávær hópur fólks hafi fengið hljómgrunn og nýti sér hann. Bakslag í baráttu hinsegin fólks er áþreifanlegt og hefur skólakerfið ekki farið varhluta af þeirri þróun. Inngilding hinsegin ungmenna og barna í skólum hefur því sjaldan verið mikilvægara verkefni.

Jöfnunartækið inngildandi menntastefna

Aðalnámskrá kveður á um að hornsteinn íslenskrar menntastefnu sé inngildandi menntun fyrir alla og jafnræði til náms. Kjarni hennar er m.a samsettur úr sex grunnþáttum þar sem jafnrétti og lýðræði og mannréttindi eru þar á meðal.

Grunnþátturinn jafnrétti gerir ráð fyrir opinskárri og gagnrýninni umræðu um jafnrétti í víðum skilningi, m.a. um hinseginleika, kynjatvíhyggju og gamaldags kynjaðar staðalmyndir.

Einnig ber skólasamfélaginu skv. grunnþættinum lýðræði og mannréttindi að kenna nemendum gagnrýna hugsun þannig að þeir verði færir um að þekkja viðhorf og athafnir sem tengjast hugmyndum um mismunun og spyrja hverju þurfi að breyta svo byggja megi upp inngildandi samfélag. Hið sama má finna í Aðalnámskrá en þar er kveðið á um að skólar beri ábyrgð á að nemendur geti þekkt þá þætti í samfélaginu sem valda mismunum og að sama skapi þá sem skapa tækifæri til réttlætis og jafnréttis. Næst þetta?

Skólinn er besta jöfnunartæki samfélagsins; um það er varla hægt að deila en betur má ef duga skal. Rannsóknir fram að þessu hafa sýnt að þau meðvituðu og ómeðvituðu norm sem ríkja í námsumhverfi, t.d. svokölluð gagnkynhneigðarhyggja, hafi hamlandi áhrif á inngildingu hinsegin nemenda og þar með áhrif á farsæld þeirra. Þetta gefur sterklega til kynna að fyrrgreindum grunnþáttum íslenskrar menntastefnu sé ekki sinnt sem skyldi.

Hinsegin dagar og gleðiganga 2022.

Niðurstöður nýrrar íslenskrar rannsóknar sem unnin var af Írisi Björk Eysteinsdóttur og Írisi Ellenberger sýnir m.a. að töluverð tækifæri eru til umbóta þegar kemur að stuðningi við kennara sem sinna jafnréttiskennslu. Slík kennsla byggir á trausti milli kennara og nemenda sem næst ekki nema kennari hafi færni til að fjalla um flókin málefni eins og t.d. kynhneigð, kyntjáningu og kynvitund af öryggi. Rannsóknir hafa sýnt að kennarar og kennaranemar kalla eftir meiri fræðslu og þjálfun til að öðlast einmitt þetta öryggi.

Bakslag innan skóla er raunverulegt

Niðurstöður rannsóknar þeirra nafna rýma vel við niðurstöður annarrar rannsóknar sem unnin var af Önnu Mae Cathcart-Jones, Auði Magndísi Auðardóttur og Írisi Ellenberger.

Niðurstöður beggja rannsókna benda til að greina megi aukna hinsegin andúð í skólum. Birtingarmynd hennar er m.a. sú að regnbogafánar höfðu verið teknir ófrjálsri hendi og foreldrar höfðu hringt og kvartað undan jafnréttiskennslu. Fram kom að kvartanir foreldra hefðu aukist undanfarið í einstaka skólum og var svo komið að kennarar sem kenna um hinsegin málefni fundu fyrir kvíða vegna kennslunnar og viðbragða við henni. Taka skal fram að kennararnir höfðu fullan stuðning sinna stjórnenda sem svöruðu öllum fyrirspurnum foreldra.

Þriðja birtingarmynd bakslagsins og kannski sú algengasta var að ákveðinn hópur nemenda, einkum drengja, lagði neikvæðan skilning í orð sem tengjast hinseginleika og notuðu þau til að lítillækka og jaðarsetja ákveðna einstaklinga eða hópa. Orð eins og hommaógeð og faggi heyrðust oft meðal drengja en rannsóknir hafa sýnt að í þeim hópum þar sem gagnkynhneigðarhyggja er áberandi krauma hugmyndir um úreltar staðalmyndir kynja líka og ætti það eitt að hringja viðvörunarbjöllum.

Skólinn er besta jöfnunartæki samfélagsins; um það er varla hægt að deila en betur má ef duga skal

Hinsegin andúð þrífst í þögninni

En þessi dæmi segja ekki alla söguna. Hinsegin andúð þrífst þar sem ekki eru til inngildingar- fræðslu- og forvarnaráætlanir, hún þrífst þegar þekkingu á viðbrögðum við henni er ábótavant. Hún þrífst í þögninni. Niðurstöður rannsóknanna sýndu fram á einmitt þennan skort.

Þegar hinsegin andúð er meðhöndluð eins og hvert annað agabrot, en ekki sem brot gegn jaðarsettum hópi eða einstaklingi eins og hatursorðræðu ætti að meðhöndla, dafnar hún. Hér er ekki átt við að öll orðræða sem inniheldur hinsegin andúð sé hatursorðræða heldur er mikilvægt að greina orðræðuna sama hversu alvarleg hún er, áhættumeta hana og bregðast við samkvæmt viðbragðsáætlun, því slík orðræða hefur bein áhrif á einstaklinga og hópa. Orðræðan veldur óöryggi og hefur neikvæð áhrif á líðan, streitu og sjálfsmynd þeirra sem fyrir verða og þar með farsæld. Krafan um að allir nemendur, líka hinsegin nemendur, upplifi öryggi í skólanum er óhagganleg.

Inngilding hinsegin nemenda í forgangi

Ljóst er að setja þarf inngildingu hinsegin nemenda í skólum landsins í forgang. Kennaramenntun þarf að kveikja jafnréttisvakann og veita kennurum það öryggi sem þeir þurfa til að fjalla um flókin umfjöllunarefni grunnþáttanna jafnréttis, lýðræðis og mannréttinda. Slíkt öryggi hefur sjaldan verið mikilvægara en nú þegar bakslag er áþreifanlegt.

Opinber orðræða bakslagsins ber með sér djúpstæða hinsegin andúð og hatur. Umræðan er afvegaleidd, sérstaklega á samfélagsmiðlum þar sem alið er á ótta og rökvillum um félagslegt kyn og röksemdir einskorðaðar við líffræðilegt kyn svo dæmi séu tekin.

Orðræða sem þessi hefur skaðleg áhrif bæði á einstaklinga og hópa. Innan skóla verður jafnréttis- og mannréttindafræðsla að vera í föstum skorðum og standa föstum fótum bæði fyrir kennara og nemendur. Einnig verða forvarnar- og viðbragðsáætlanir sem snúa að hinsegin málefnum að vera til og virkar.

Stefna sveitarfélaga og þar með skóla í hinsegin málefnum verður að vera skólasamfélaginu öllu opin og skýr. Stjórnendur verða að finna stuðning sveitarfélags ef upp kemur sú staða að svara þurfi spurningum eða efasemdum um faglegt skólastarf er varða fyrrgreinda grunnþætti menntunar og kennarar þurfa að fá frið til að sinna sínum sérfræðistörfum.

Samvinna, gagnkvæm virðing og sátt innan skólasamfélagsins sem heildar hefur sjaldan verið mikilvægari.

Fögnum fjölbreytileikanum einlæglega.

Til hamingju með Hinsegin daga!