Hingað og lengra!
Félag stjórnenda leikskóla og RannUng efna til námstefnu undir yfirskriftinni Hingað og lengra – framsækin forysta leitar lausna föstudaginn 27. mars næstkomandi.
Eins og yfirskrift námstefnunnar ber með sér tekur dagskráin mið af þeim hindrunum sem stjórnendur leikskóla standa frammi fyrir og leitað verður lausna til að gera starfsumhverfið þannig að stjórnendur geti sinnt leiðtogahlutverki sínu enn betur.
Elín María Björnsdóttir, leiðtogi hjá FranklinCovey, verður aðalfyrirlesari en hún leggur áherslu á „sjö venjur árangursríkra leiðtoga“. Elín María mun að loknum fyrirlestri sínum efna til örnámskeiðs þar sem fjallað verður um forgangsröðun og tímastjórnun í anda „sjö venja“ til árangurs.
Eftir hádegishlé verður stofnað til menntabúða þar sem kynntar verða nýjar rannsóknir á stjórnun leikskóla, viðbrögð við starfsmannaveltu, heilsueflandi aðgerðir og fleira.
Lokafyrirlestur námstefnunnar verður í höndum Sindra Sigurjónssonar stjórnunarráðgjafa. Sindri fjallar um hvernig innleiða megi mikilvægar breytingar þrátt fyrir áreiti og „hvirfilvinda“ sem fylgja daglegu amstri.
Nánari upplýsingar um dagskrána verða birtar á næstunni og opnað fyrir skráningu þegar kostnaður og framkvæmd námstefnunnar liggur ljós fyrir.
Námstefnan fer fram í Gullhömrum Reykjavík.