Hér er fjöldi fólks sem hefur ekki aðgang að íslensku

Fréttir|9. janúar 2022

Jórunn Einarsdóttir kennir íslensku í Kaupmannahöfn og var farin að kenna gegnum skjá löngu fyrir heimsfaraldur.

Ég er frá Vestmannaeyjum og alin þar upp, stúdent úr Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum,“ segir Jórunn Einarsdóttir, kennari íslenskra barna í Kaupmannahöfn sem auk þess rekur fyrirtækið Kötlu – kennslu og ráðgjöf þar sem Jórunn hvort tveggja kennir íslensku og býður upp á sérhæfða ráðgjöf í tilhögun náms og kennslu í íslensku fyrir starfsfólk fyrir­tækja. Af öllum heimsins stöðum var áhugi hennar á kennslu vakinn þegar hún dvaldi sem au pair í Bandaríkjunum á öldinni sem leið.

„Þar kynntist ég stelpum sem höfðu verið í Kennó og þar kviknaði áhugi minn á að fara í Kennaraháskólann. Og þegar ég sæki um í Kennó var það á tíma sem var svolítið erfitt að komast inn í skólann,“ segir Jórunn frá. „Þannig að ég varð mjög glöð þegar ég komst inn, fannst það alveg dálítið afrek og þar var ég svo næstu þrjú árin og lýk BA-prófinu,“ en námið sat hún árabilið 1996 – 1999.

Hún kveður tímann í Kennara­háskólanum hafa verið hinn skemmtilegasta. „Þessir bekkjarfélagar sem maður eignaðist á sínum tíma eru mínar bestu vinkonur í dag,“ segir Jórunn og játar að minna hafi farið fyrir karlkyninu í náminu, „ja, ætli þeir hafi ekki verið fjórir eða fimm, mig minnir það, af líklega um 25 nemendum,“ rifjar hún upp.

Strákar í íþróttir – stelpur í textíl

Á þessum tíma hafi nemendur skólans valið sér námsgreinar, sem þeir hygðust leggja fyrir sig í kennslunni síðar meir, ekki kjarnafög eins og síðar kom til. „Strákarnir fóru margir hverjir í íþróttir en vinkonur mínar völdu sér margar hverjar textíl og myndmennt og slíkt, sem var kennt annars staðar og þá skildi svolítið leiðir,“ segir Jórunn sem valdi sér dönsku og samfélagsfræði.

Eins og fyrr segir á hún þó fjölda góðra vinkvenna úr kennaranáminu „og maðurinn minn grínast oft með það þegar ég hitti konur á förnum vegi sem heilsa mér. Þá spyr hann gjarnan „Var þessi með þér í Kennó?“,“ segir Jórunn og hlær, en maður hennar er Ágúst Óskar Gústafsson læknir sem einnig starfar í kóngsins Kaupmannahöfn.

„Við kynntumst nú á „blind date“,“ segir Jórunn glettnislega um kynni þeirra Ágústs, „áttum sameiginlega vini sem töldu alveg tilvalið að við hittumst og það gekk svona líka ljómandi vel,“ heldur hún áfram, en að lokinni útskrift úr Kennaraháskólanum lá leiðin til Óðinsvéa þar sem ágúst var við nám.

„Þetta var nú reyndar svolítið erfitt,“ rifjar Jórunn upp af fyrstu mánuðunum í Danaveldi, „ég var þarna nýútskrifuð og full af eldmóði og mig langaði rosalega til að kenna og vera alvörukennari, en það var auðvitað ekkert auðvelt, ég stökk ekkert inn í einhverja stöðu og var auðvitað dálítið málhölt í fyrstu þótt ég hefði nú valið dönsku sem kennslufag. En ég gat fengið stöðu sem forfallakennari og var í því í alveg eitt og hálft ár í Óðinsvéum,“ segir Jórunn, enda hennar kennsluréttindi frá Íslandi viðurkennd að fullu í dönskum grunnskólum.

Að fósturjarðar ströndum á ný

Hún segir kennsluna hafa gengið ágætlega þrátt fyrir að nemendurnir væru af öðru þjóðerni. „Maður tileinkaði sér bara ákveðinn orðaforða sem gekk inni í kennslustofunni auk þess að vera vel heima í námsefninu, en svo var annað mál, þarna í byrjun, að hafa samskipti við samkennarana, ræða um daginn og veginn og hvað hefði verið í fréttunum kvöldið áður og svoleiðis.“

Orðaforði sem tengdist kennslunni hafi þó verið Jórunni tamur, enda danska önnur námsgreinin sem hún valdi sér í náminu á Íslandi auk þess sem fjöldi hugtaka í kennslufræðum sé nánast alþjóðlegur. Þó hafi alltaf blundað í henni að fá að kenna íslenskum nemendum dönsku og gekk sá draumur eftir þegar þau Ágúst fluttu til Íslands á ný árið 2004 og settust að á Akureyri þar sem kandídatsárið í læknavísindunum beið Ágústs.

Að því loknu fluttu þau á heimaslóðir Jórunnar í Vestmannaeyjum þar sem hún kenndi við annan grunnskólann (skólarnir tveir í Eyjum hafa nú sameinast í einn) og nam dvölin þar áratug áður en Danmörk seiddi þau Ágúst til sín á ný árið 2015. „Fyrir því voru margar ástæður, meðal annars þráin eftir að prófa eitthvað nýtt og vaxa. Mig hafði lengi langað að fara í framhaldsnám hérna úti og gerði það,“ segir Jórunn sem þá lagði til atlögu við meistaranám í alþjóðlegum viðskiptasamskiptum, eða international business communication, við Copenhagen Business School.

„Á þessum tíma var ég orðin svolítið þreytt á því að kenna,“ játar Jórunn, „það var búið að vera mjög mikið að gera hjá mér og ég var búin að vera í pólitík líka og langaði um leið til að verða örlítið meira skapandi í starfi og ráða mér meira sjálf. Þarna var mikið um að boð væru að berast inn í skólana frá stjórnkerfinu og ég upplifði það mjög sterkt að mér fannst óþægilegt að búa við svona mikla stýringu á mínu starfi, fannst bara verið að taka af mér þau völd að gera hlutina á þann hátt sem ég vildi gera þá,“ segir hún af einni kveikjunni enn að framhaldsnáminu í Kaupmannahöfn.

„Hvað kanntu, í hverju ertu góð?“

Jórunn hafi á þessum tíma séð fyrir sér að hún væri að hverfa frá kennslustarfinu þótt annað ætti eftir að koma á daginn. „Það er nú einu sinni bara þannig, að þegar maður er kennari þá er maður alltaf kennari. Maður endar einhvern veginn alltaf þar,“ segir Jórunn, innt eftir tilurð fyrirtækis hennar, sem nefnt var í upphafi viðtalsins, Kötlu – kennslu og ráðgjöf.

„Katla verður eiginlega til vegna þess að mér hafði ekki gengið neitt rosalega vel að fá vinnu, ég hafði sótt um ýmis störf tengd því sem ég var nýútskrifuð úr sem ekki bar tilætlaðan árangur svo ég hugsaði með mér „hvað kanntu, í hverju ertu góð?“ og þá kom kennslan auðvitað fyrst upp í hugann og sú staðreynd að hér er fjöldi fólks sem hefur ekki aðgang að íslensku og fullt af fólki úti um alla Evrópu og allan heim svo ég spurði mig hvers vegna ég færi þá ekki að sinna þessum stóra hópi,“ segir Jórunn frá vangaveltum sínum að meistaranáminu loknu.

Hún játar að á þessum tíma hafi hún verið mjög upptekin af því að kennsla væri eitthvað sem aðeins væri hægt að framkvæma í kennslustofu, en nú er staðan hins vegar sú að kennsla Jórunnar fer nánast að öllu leyti fram gegnum skjá – og reyndar voru þeir kennsluhættir til komnir löngu fyrir tíma heimsfaraldursins sem loks er í rénun eftir langa mæðu.

„Ég stofna Kötlu 2018 og því löngu farin að kenna gegnum skjá fyrir Covid, en svo sprakk þetta alveg út í Covid. Fólk fór þá að eiga mun auðveldara með að tileinka sér þessa tækni og hætta að líta á skjáinn sem einhvern flöskuháls eins og hann var í augum margra áður. Núna er þetta ekki lengur eitthvað sem fólk setur fyrir sig,“ segir Jórunn og viðurkennir í framhaldinu aðspurð að hún sé reyndar ekki mjög glúrin í markaðssetningu, viðskiptavinir hennar leiti mun fremur til hennar eftir að hafa heyrt af henni og þeirri kennslu sem hún starfrækir gegnum Kötlu.

Líður vel í Danmörku

„Ég nota nú bara mest samfélagsmiðla og fólk sendir mér fyrirspurnir. Mitt kennsluform hefur fram að þessu mest verið einkakennsla þar sem ég er bara með einn og einn nemanda í einu, en auk þess hef ég verið með námskeið í íslensku í Jónshúsi fyrir nemendur sem komast ekki á þeim tíma þegar íslenskuskólinn á vegum sveitarfélagsins er,“ útskýrir Jórunn.

Starfsemi hennar teygir stafræna anga sína þó víðar, meðal annars til Íslands þar sem Jórunn vinnur nú að því í samstarfi við Öryggismiðstöðina að búa til íslenskunámskeið handa erlendu starfsfólki fyrirtækisins sem ætlað er að nýtast því við að ná betur utan um starfsemi vinnuveitandans og eigin starfsvettvang.

Jórunn og Ágúst eru að hennar sögn ekki á þeim buxunum að flytjast búferlum á næstunni. „Okkur líður rosalega vel hérna, kunnum vel við Danina og höfum bara komið okkur þannig fyrir að lífið er bara nokkuð ljúft,“ segir hún, en Ágúst starfar sem heimilislæknir í Kaupmannahöfn. „Þannig að við erum bara í góðum málum,“ eru lokaorð Jórunnar Einarsdóttur, íslenskukennara í Kaupmannahöfn sem áttaði sig á því að þegar maður er kennari þá er maður kennari þótt hefðbundin kennslustofa sé ekki alltaf vettvangurinn.

 

Viðtalið birtist fyrst í Skólavörðunni, 2. tbl. 2022.