Helmingur hefur kosið um kjarasamning FL

Fréttir|10. maí 2022

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga stendur til klukkan tólf á morgun.

Félagar í Félagi leikskólakennara kjósa nú um nýjan kjarasamning. Samninganefndir FL og Sambands íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir samninginn 27. apríl síðastliðinn. Gildistími samningsins er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023. 

Kjörsókn var 51,6 próent klukkan tólf í dag. 

  • Hófst klukkan 9:00 fimmtudaginn 5. maí
  • Lýkur klukkan 12:00 miðvikudaginn 11. maí. 

Um atkvæðagreiðsluna

  • Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi leikskólakennara sem starfa hjá sveitarfélögum landsins. Þeir sem ekki hafa rétt til að taka þátt í kosningunni eru félagsmenn sem eru í launalausu leyfi, félagsmenn sem hafa beina félagsaðild að KÍ, félagsmenn sem þiggja atvinnuleysisbætur og starfsmenn KÍ.

    Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.
  • Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
  • Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.
  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FL 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Kjósa má aftur, en um leið ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði. Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

    Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is.

Kjósa um samninginn