Heitir pottar og sólpallar settir upp á Bifröst

Fréttir|2. júní 2022

Orlofshús OKÍ á Bifröst hafa heldur betur tekið stakkaskiptum. Framkvæmdum við fjögur hús er lokið og senn líður að því að seinni fjögur húsin verði tilbúin. Frípassi á golfvöllinn Glanna fylgir nú dvöl á Bifröst.

Fjögur sumarhús Orlofssjóðs KÍ á Bifröst eru nú tilbúin eftir endurbætur. Búið er að setja heitan pott við hvert hús og fallegan og þægilegan sólpall. 

Orlofssjóður á átta hús á Bifröst og ráð fyrir gert að næstu tvö hús verði tilbúin með sama hætti um miðjan júní og síðustu tvö um mánaðamótin júní júlí. 

Önnur spennandi nýjung er að nú býðst félagsmönnum sem dvelja á Bifröst að fara í golf. Frípassi á golfvöllinn Glanna er í gildi meðan á dvöl stendur. Passinn gildir fyrir tvo en einnig er hægt að leigja golfsett á staðnum og fá kennslu ef þörf þykir. 

Borgarfjörður er rómaður fyrir fegurð eins og allir vita. Umhverfi Bifrastar er afskaplega fallegt og hægt að fara í margar skemmtilegar gönguferðir. Má þar nefna fossinn Glanna sem er í Norðurá.