Heimur barnanna svo spennandi og skemmtilegur

Áslaug Jóhannsdóttir leikskólakennari gaf nýverið út bókina Hversdagssögur úr leikskóla þar sem lesendur fá innsýn í heim kennara og leikskólabarna. Skólavarðan forvitnaðist um verkefnið.
Áslaug Jóhannsdóttir leikskólakennari starfaði sem listgreinakennari í listaskálanum á Leikskóla Seltjarnarness frá árinu 2017 til 2023. Síðastliðið vor fékk hún styrk úr Sprotasjóði Rannís til að útbúa hefti sem nefnist Hversdagssögur úr leikskóla. Tilgangurinn með heftinu var að veita innsýn inn í heim leikskólakennara og hversdagsheim barnanna í gegnum myndsköpun og leik. Bókin er ætluð öllum sem hafa gaman af hversdagssögum og vilja kynnast lífi barna í leikskólum.
„Heftið fjallar um hvað ég gerði með börnunum í listaskálanum síðastliðin ár. Þangað komu börnin í litlum hópum þar sem ýmiss konar verkefni biðu þeirra. Heftið segir frá hvernig gekk, hvað gekk vel og hvað illa, hvað við gerðum og hvað börnin höfðu að segja um verkefnin og ýmislegt annað,“ segir Áslaug.
Uppgötvaði „barnaheiminn“ í listaskálanum
„Fljótlega eftir að ég byrjaði að vinna í listaskálanum fannst mér ég uppgötva „barnaheiminn“ miklu betur en ég hafði áður gert. Ég gat spjallað meira við börnin og fylgst betur með þeim. Mér fannst heimur þeirra svo spennandi og skemmtilegur að ég fór að skrá athugasemdir þeirra og tilsvör.
Ég tók líka myndir – bæði af börnunum og af verkefnum þeirra,“ segir Áslaug. „Eftir að ég ákvað að hætta í listaskálanum sótti ég um styrk til að gefa verkefnið út. Mig langaði að gefa öðrum dálitla innsýn inn í starf mitt.“
Áslaug nýtti fjölbreyttan efnivið í starfi sínu í listaskálanum; málningu, liti, leir, garn og fleira. „Ég lagði líka alltaf af stað með ný verkefni sem áttu að auka þekkingu og hæfni barnanna. Til dæmis að kynna fyrir þeim liti og form, mismunandi árstíðir, dýr og hátíðisdaga. Ekki var verra að þau lærðu ný orð í leiðinni eins og ferhyrningur, foss, gljúfur og glysgjarn.“
Friður og ró mikilvægust
„En mikilvægast af öllu var að börnin voru í litlum hópum, höfðu frið og ró og gátu að mestu leyti gert það sem þau langaði til. Í því fólust lífsgæðin fyrir börnin í listaskálanum. Börn njóta sín ekki í hávaða og erilsömu andrúmslofti,“ útskýrir Áslaug.
Hún segir áherslur sínar í starfi með börnum hafa breyst mikið í gegnum árin. „Áður fyrr fannst mér skipta miklu máli að börnin væru „að læra“ eitthvað í leikskólanum. Nú er meiri áhersla lögð á leik barnanna og að þau læri í gegnum leikinn.“ Það sem helst rýrir gæði leikskólastarfsins – fyrir utan fátt fagfólk og mikla starfsmannaveltu – er að börnin eru í of stórum barnahópum, eru of lengi í leikskólanum og byrja allt of ung. Við sem samfélag ættum að reyna að breyta þessari þróun – fyrir börnin,“ segir hún.
„Nú fer að líða að starfslokum hjá mér. Ég kveð starf mitt með söknuði þó oft hafi það reynt mikið á mig,“ segir Áslaug. „Ég hef tekið starfið mjög alvarlega og fundið til mikillar ábyrgðar. En ég er sífellt að reyna að verða aðeins „kærulausari“. Hvort mér tekst það á þeim þremur árum sem ég á eftir í starfi er ekki gott að segja.“

„Hvar sofarðu?“ spurði stúlka mig um leið og hún leit í kringum sig í listaskálanum.
Hversdagssögur úr leikskóla
Hér fyrir neðan er að finna tvær sögur úr bókinni Hversdagssögur úr leikskóla eftir Áslaugu Jóhannsdóttur.
Kolsvartur Krummi
Hérna kemur krummaþemað sem var gert með eldri börnunum. Í byrjun skoðuðum við trékrumma sem ég fékk lánaðan, röbbuðum um hann, lífshætti hans o.fl. Ég fann svo vel hvað það var auðvelt að fást við krummaverkefnið því það var búið að ræða um krummann inni á deild. Enda voru börnin ekki lengi að einhenda sér í verkefnið. Þau teiknuðu útlínur, máluðu krummann svartan, límdu á hann augu og fjaðrir og klipptu út fætur. Síðan settu þau þetta allt saman í einn glæsilegan, kolsvartan krumma.
Ég átti engar svartar fjaðrir – bara marglitaðar. Eitthvað var ég að afsaka þetta við börnin þegar einn drengur benti mér að að „svartar fjaðrir fengjust í krummabúðinni hérna til hægri.“ Ég þakkaði honum innilega fyrir ábendinguna og sagðist ætla að hugsa málið.
Sumum börnunum féllust reyndar hendur í byrjun þegar ég bauð þeim að teikna krumma – en ekki einni stúlkunni. Hún horfði vandlega á trékrummann og byrjaði síðan að teikna. Í kjölfarið leit hún ítrekað upp til að skoða trékrummann betur og teiknaði svo – líkt og Kjarval gerði forðum daga. [Myndin glæsilega sést hér fyrir ofan.] Auðvitað skreytti hún líka í kringum krumma því hann er víst svo glysgjarn. Nýtt orð sem börnin lærðu í listaskálanum.
Sprengjumyndir
Þar sem áramótin voru nýliðin langaði mig að gera eitthvað með börnunum sem tengdist þeim. Börnin voru líka mjög upptekin af sprengjuregninu sem þau höfðu upplifað um áramótin. Niðurstaðan varð sú að ég sýndi börnunum myndband af flugeldum.
Eftir að hafa skoðað myndbandið í dágóðan tíma og hlustað á fjölmargar reynslusögur af tívolíubombum byrjuðu börnin að „mála“. Þau fengu kolsvart blað eins og myrkrið er á gamlárskvöld og sérstaka silkimálningu. Það glampar á hana þegar hún þornar – líkt og sprengjur.
Ég lagði til að þau gerðu punkta á blaðið en þá væru þau að líkja eftir sprengjum. Það voru nú ekki allir að kaupa það. Flest börnin gerðu sprengjur eftir sínu hyggjuviti. Það skal tekið fram að þau fengu pínulitla dúkkupensla til að mála með. Þeir áttu einmitt að hjálpa til við að gera punkta og gera þeim erfiðara fyrir að mála með penslunum. Það stoppaði samt ekki suma í að mála. Það reyndi líka skemmtilega á aðra þætti eins og þrautseigju.
Á myndinni hér fyrir [ofan] fór ein stúlkan nákvæmlega eftir fyrirmælum mínum. Svo vel að ég gat ekki annað en dáðst að því. Stúlkan byrjaði að gera punkta í kringum alla myndina. Síðan bætti hún við punktum þar til aðeins miðjan var eftir en þá kom lokapunkturinn. Glæsileg mynd hjá okkar konu! Hún var u.þ.b. eina klukkustund að nostra við þetta. Geri aðrir betur.

Tveir drengir voru að hlaupa á ganginum. „Það á að ganga á ganginum“ brýndi samviskusamur starfsmaður fyrir drengjunum. „Við erum Flash (ofurhetja) þess vegna getum við ekki labbið“. Hvað er hægt að segja við því.