Heimsreisa og heimanám – fer það saman?

Vala Mörk iðjuþjálfi og Guðjón Svansson ráðgjafi ásamt tveimur af sonum sínum eru í fimm mánaða ferðalagi í kringum hnöttinn. Báðir drengirnir eru í skóla, annar á fyrsta ári í menntaskóla og hinn á öðru ári í grunnskóla. Á ferðalaginu sinnir fjölskyldan vinnu og skóla, í bland við að upplifa heiminn og læra af stöðunum sem þau ferðast um.
Við fjölskyldan erum í skemmtilegu ferðalagi um Blue Zone svæði heimsins, en það eru þau svæði sem rannsóknir hafa sýnt að skari fram úr varðandi langlífi og góða heilsu. Þessi svæði eru fimm. Í Bandaríkjunum er það bærinn Loma Linda og umhverfi, í Costa Rica er það Nicoya skaginn, í Japan er það eyjan Okinawa, í Grikklandi eyjan Ikaria og á Ítalíu er það fjallasvæði á Sardiníu. Við stefnum á að vera mánuð í hverju landi, stundum á miklu flakki, stundum minna.
Í ferðinni eru með okkur tveir synir okkar, Patrekur Orri nemandi á fyrsta ári í Verslunarskóla Íslands og Snorri Valur, nemandi í öðrum bekk í Varmárskóla. Auk þeirra eigum við tvo eldri drengi, Viktor Gauta, 22 ára nemanda í Copenhagen Business School og Arnór Ingimund 20 ára, sem varð stúdent frá MS síðastliðið vor og stefnir á nám við Háskóla Íslands næsta haust. Þegar eldri drengirnir voru 10 og 12 ára og Patrekur Orri 5 ára fórum við í svipað ferðalag í heilt ár og náminu sinntu þeir í heimaskóla sem ég aðstoðaði þá við. Ástæðan fyrir því ferðalagi var löngunin til að upplifa heiminn í náinni samveru með börnunum okkar. Þetta ár var okkur dýrmætt og mikil lífsreynsla og enn í dag búa drengirnir að því nána sambandi sem myndaðist þeirra á milli.
Við ræðum oft þá ferð og höfum því ósjaldan fengið spurninguna „hvenær fæ ég að fara í ferðalag?“ frá Snorra Val.
Leysa þarf vandamálin eitt í einu
Löngunin til að fara í aðra langa ferð blundaði því í okkur, en hvernig ferðalag og hvert skyldi fara var óljóst. Þegar Guðjón fór á ráðstefnu hjá VIRK í maí 2018 hlustaði hann á hollenskan lækni tala um hvernig hún vildi breyta nálguninni í heimilislækningum í heimalandinu og byggði þar meðal annars á rannsóknum um Blue Zone svæðin. Við höfðum aldrei heyrt um þau svæði, en þarna kviknaði hugmyndin að þessari ferð. Við ræddum þennan fyrirlestur þegar Guðjón kom heim af ráðstefnunni og undirbúningurinn að því ferðalagi sem við erum í núna hófst sama kvöld!
Við ákváðum að fara af stað strax eftir áramót 2018/19 en ekki fyrr því í fjölskyldunni eru mikil jólabörn. En með ákvörðuninni var erfiðasti hluti undirbúningsins búinn. Að ákveða að fara og festa dagsetningu.
Þegar ákvörðunin er tekin, er næsta skref að leysa vandamálin sem koma upp, eitt í einu. Það verða alltaf hindranir á leiðinni en málið er að láta þær ekki stoppa sig. Ein algengasta spurningin sem við fengum þegar við sögðum fólki frá ferðalaginu sneri að drengjunum og skólunum þeirra. Hvað með námið, er þetta hægt? Þegar hér er komið við sögu höfum við verið á ferðalagi í 8 vikur, vorum mánuð í Loma Linda og erum þegar þetta er skrifað að klára mánaðarferðalag um Costa Rica. Svo já, þetta er hægt :)
Gott viðmót Versló
Patrekur Orri var að klára tíunda bekk þegar ákvörðunin um ferðina var tekin og það voru miklar vangaveltur hjá honum um hvaða menntaskóla hann vildi fara í. Hann hefur gaman af ferðalögum og er óhræddur við að prófa nýja hluti, svo það var aldrei spurning um hvort hann kæmi með. Val hans á menntaskóla stýrðist því aðeins af fjarnámsmöguleika, því honum fannst mikilvægt að dragast ekki aftur úr jafnöldrunum. Við skoðuðum nokkra skóla og eftir kynningu í Versló, þar sem fjarnám er einn af valkostunum, varð sá skóli fyrir valinu. Viðmótið í skólanum er til fyrirmyndar. „Engin vandamál, bara lausnir“ var viðmótið sem við mættum í Versló gagnvart ósk okkar um eina önn í fjarnámi og aðrar í staðarnámi.
Orri byrjaði því fyrstu önnina í staðarnámi, komst vel af stað í náminu og kynntist skólanum vel. Það hefur eflaust auðveldað framhaldið og fjarnámið gengur mjög vel. Það er skipulega sett upp og kennarar eru snöggir að svara spurningum þegar þær vakna. Við foreldrarnir þurfum sjálf að sinna vinnu gegnum tölvu, svo hann hefur fyrirmyndina að vinnustundum í ferðinni og fylgir okkar vinnurútínu að mestu.
Samverustundirnar eru líklega stærsti kosturinn við svona ferðalag. Við höfum bara hvert annað og gæðastundirnar eru því mjög margar.
Verandi unglingur örlar stundum á minni hressleika fyrri part dags, en það bætir hann upp með mun meiri hressleika seinnipartinn. Orri sér alveg sjálfur um að sinna náminu og það er lítið sem við þurfum að hjálpa með enn sem komið er. Hann er sterkur námsmaður og það auðveldar að sjálfsögðu margt, en auðvitað koma upp erfiðleikar öðru hvoru sem við hjálpumst við að leysa. Hér í sveitum Costa Rica er netið óáreiðanlegt og því hefur skipulagshæfileikinn fengið góða þjálfun. Hann hefur þurft að tileinka sér þá list „að vinna sér í haginn“ – nokkuð sem lítið var stundað heima á Íslandi, enda ekki þörf á þar sem gott net er alltaf til staðar.
Honum hentar vel að taka rispur í einu fagi, ljúka kannski tveggja vikna vinnu á tveimur dögum og vera þá lausari við næstu daga sem nýtast til upplifana í ókunnu landi og ferðalaga milli staða.
Samverustundirnar stærsti kosturinn
Við erum núna í Samara í Costa Rica, en svo er stefnan tekin á Japan. Það ferðalag mun taka fjóra daga og því hefur Orri nýtt dagana í Samara vel til náms. Í gær fórum við hin í bæjarferð og gáfum honum góðan vinnufrið sem hann nýtti vel – kláraði verkefni og tók próf. Var svo hoppandi kátur með útkomuna þegar við komum tilbaka og eftir góðan baunarétt (já, við erum líka að prófa ýmsa nýja rétti sem innfæddir borða og eru ein ástæða langlífis hér) þá safnaðist fjölskyldan saman í óþægilegu stólunum sem eru hér í húsinu og horfði saman á mynd. Samverustundirnar eru líklega stærsti kosturinn við svona ferðalag. Við höfum bara hvert annað og gæðastundirnar eru því mjög margar.
Skólavinna Snorra Vals er kannski einfaldari en ekki minna mikilvæg. Fyrstu árin í grunnskóla snúast að mínu mati að miklu leyti um að byggja sterkan grunn fyrir komandi skólaár þegar námið verður flóknara. Í svona ferðalagi gefst tækifæri til að hafa grunninn sterkan og um leið margþættan. Ég er viss um að kennarar eru sammála mér um kosti þess að hafa námið skemmtilegt og ef manni tekst að vekja áhuga nemanda og forvitni er námið og skólavinnan auðveldari.
Heimaskóli fyrri part dags
Við fengum mjög góð viðbrögð frá kennurum og stjórnendum Varmárskóla þegar við komum með hugmyndina að ferðalaginu til þeirra. Þau sáu tækifærin í því að nemandi væri á ferðalagi um heiminn og við erum dugleg að hjálpa Snorra við að senda tölvupósta og myndir til bekkjarins. Kennari Snorra les svo póstana upp fyrir bekkinn, þau skoða á hnetti hvar hann er staddur og ræða staðina.
Við tókum nokkrar skólabækur með í ferðina sem við vinnum reglulega með, en skilaboðin sem við fengum fyrir þessa ferð (og reyndar einnig stóru ferðina fyrir tíu árum!) var að mikilvægast væri að drengurinn héldi góðum grunni í stærðfræði og íslensku.
Við höfum yfirleitt heimaskóla fyrri part dags. Tökum einn til tvo tíma í vinnu. Ég set stundum upp lista yfir verkefni sem Snorri á að leysa. Hef ferning fyrir framan hvert atriði sem hann svo krossar við þegar það er leyst. Þessi aðferð hefur reynst honum vel. Dæmi um slíkan lista getur verið að klára ákveðnar blaðsíður í stærðfræði, skrifa kafla í sögunni sem hann er að semja, æfa sig í krossgátu, telja flísarnar á baðinu og deila með tveimur, leysa rúbikskubbinn einu sinni og lesa upphátt um letidýr á Vísindavefnum.
Auk íslensku og stærðfræði snýst heimaskólinn sem sagt mikið um það sem við erum að upplifa á hverjum stað. Við fórum til dæmis í ferð um regnskógana með leiðsögumanni til að skoða letidýr. Eftir þá ferð fékk Snorri það verkefni að gera litla ritgerð um letidýr, hvað þau verða stór, hvar þau búa, hvað þau borða og svo framvegis. Þar byggði hann á skoðunarferðinni og því sem hann sá. Ég notaði tækifærið og kenndi honum að googla til að bæta við upplýsingarnar. Hann æfði ritun með því að skrifa þetta niður, lærði um uppsetningu ritgerðar og kynntist Vísindavefnum, sem hann er afskaplega hrifinn af. Allt í einum pakka.
Við fengum mjög góð viðbrögð frá kennurum og stjórnendum Varmárskóla þegar við komum með hugmyndina að ferðalaginu til þeirra. Þau sáu tækifærin í því að nemandi væri á ferðalagi um heiminn og við erum dugleg að hjálpa Snorra við að senda tölvupósta og myndir til bekkjarins.
Margt af því sem við lærum og gerum í heimaskólanum er þannig. Við löbbum mikið og skoðum umhverfið, dýrin og blómin og fáum þannig innlit í náttúrufræði og líffræði. Þegar við kaupum hluti hér á mörkuðum eða í búðum fær Snorri Valur það verkefni að reikna úr innlendum gjaldmiðli yfir í krónur. Við skoðum skeljar og steina, skiptum þeim í tvo eða fleiri hópa, látum helminginn hverfa, skiptum þá afgangnum í þrennt og svo framvegis. Stærðfræðiæfingar geta leynst víða og í þessari nánu samveru sem við fáum með börnunum okkar skapast mörg tækifæri sem við annars myndum ekki sjá.
Tíminn sem við erum saman skiptir þarna miklu máli, því við erum saman meira og minna allan sólarhringinn flesta daga. Mörgum þykir nóg um að vera með fjölskyldunni allan sólarhringinn í nokkurra daga fríi, en þetta verður öðruvísi þegar um lengri ferð er að ræða. Ákveðið jafnvægi skapast, venjur myndast og rútína þar sem allir fá sitt rými kemur oft af sjálfu sér.
Hugmyndaflugið skiptir miklu máli
Snorri Valur er mjög hress átta ára drengur og eins og mörg börn er hann afskaplega málgefinn, sísyngjandi og trallandi. Hann er að gera sér betur grein fyrir mikilvægi þess að skapa vinnufrið þegar aðrir eru að sinna verkefnum, að maður þurfi stundum að sitja í þögn og það sé allt í lagi þegar aðrir þurfa stundarfrið. Þegar tíminn er meiri og streitan minni finnum við fullorðnu líka eigin ró til að hjálpa honum að venjast því að dunda sér sjálfur. Hann var reyndar mikill dundari þegar hann var minni en við höfum fundið það síðustu árin að tæki og tölvur voru farin að vera of stór hluti af daglegu lífi hjá stubbnum.
Því hefur það einnig verið markmið í ferðinni að hjálpa honum að finna leiðir til að njóta þess að dunda sér í friði og ró án þess að hafa einhver tæki til að sökkva sér í. Hann hefur lært að leggja kapla, lært að leysa rubikskubbinn, lesa sér til ánægju eða búa til leiki. Hann hafði mjög lítið af leikföngum með í ferðina, en nokkrar léttar (ekki þungar í kílóum) bækur, fótboltamöppu, fótboltaspjöld, teikniblokk, nokkur ferðaspil og rubikskubb. Þessa hluti hefur hann notað bæði til leiks og til þess að læra.
Hugmyndaflug kennarans (ég) skiptir þar miklu og hér gildir, eins og í svo mörgu öðru, að hafa gaman af þessu, nálgast verkefnin með jákvæðni, hugsa út fyrir kassann, hlæja, leika og njóta :)
Höfundar: Vala Mörk og Guðjón Svansson. Greinin birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2019.