Heimspeki með börnum

Ingi Jóhann Friðjónsson og Helga María Þórarinsdóttir leikskólakennarar í leikskólanum Lundarseli á Akureyri héldu fjölsótt erindi á Netinu á vegum Faghópsins þriðjudaginn 7. apríl 2021. Heimspeki með börnum hefur verið ástunduð í leikskólanum Lundarseli frá 1999. Í leikskólanum er skapaður vettvangur þar sem allir taka þátt í samræðum, hlusta hver á annan, skiptast á skoðunum og velti fyrir sér. Markmiðið er að börnin fái tækifæri til að njóta sín sem náttúrulegir frumspekingar sem hafa hæfileika til að efast, velta fyrir sér og löngun til að læra. Efla sjálfstæða, gagnrýna og skapandi hugsun barnanna.
Ingi Jóhann Friðjónsson og Helga María Þórarinsdóttir leikskólakennarar í leikskólanum Lundarseli á Akureyri héldu fjölsótt erindi á Netinu á vegum Faghópsins þriðjudaginn 7. apríl 2021.
Heimspeki með börnum hefur verið ástunduð í leikskólanum Lundarseli frá 1999. Í leikskólanum er skapaður vettvangur þar sem allir taka þátt í samræðum, hlusta hver á annan, skiptast á skoðunum og velti fyrir sér.
Markmiðið er að börnin fái tækifæri til að njóta sín sem náttúrulegir frumspekingar sem hafa hæfileika til að efast, velta fyrir sér og löngun til að læra. Efla sjálfstæða, gagnrýna og skapandi hugsun barnanna. Börnin efld til að miðla hugsunum sínum og skoðunum. Börnin fái tækifæri til að mynda sér sjálfstæðar skoðanir og rökræða þær. Heimspeki með börnum tengist vel því meginmarkmiði læsis samkvæmt aðalnámskrá að börnin fái tækifæri til að vera virk í samræðum, hlusta, tjá skoðanir sínar og rökstyðja mál sitt. Börnin eru hvött til samræðna meðal annars út frá barnabókum, listum, vettvangsferðum og atvikum í leikskólanum. Börnin upplifa heimspekilegar pælingar í gegnum leikinn þegar þau gera tilraunir, rannsóknir og skiptast á skoðunum.
Erindi Inga Jóhanns og Helgu Maríu var alveg frábært og mjög áhugavert að hlusta á þau hvernig hægt er að efla skapandi og gagnrýna hugsun hjá börnum. Þau bentu á heilmikið efni sem óhægt er að hvetja alla til þess að kynna sér.
Á heimasíðu Lundarsels er að finna m.a. kennsluleiðbeiningar, myndband og ábendingar um áhugaverðar bækur um heimspeki með börnum og þróunarverkefnið Hugleik sem þau unnu að í samstarfi við HA. Þau Ingi Jóhann og Helga María buðu einnig upp á það að fólk hefði við þau samband ef áhugi er að fá meiri upplýsingar um efnið.
Við fengum að taka upp erindið og er hægt að horfa á það hér.
Takk kærlega fyrir áhugavert og fræðandi erindi Ingi Jóhann og Helga María.
