Heimir Eyvindsson býður sig fram til formanns KÍ
Fréttir|30. september 2021

Heimir tilkynnti framboðsnefnd KÍ þetta í gær.
Heimir Eyvindsson býður sig fram til formanns Kennarasambands Íslands.
Heimir tilkynnti þetta bréfleiðis til framboðsnefndar KÍ í gærkvöld.
Heimir er dönskukennari og deildarstjóri í Grunnskólanum í Hveragerði.
Formannskjör fer fram í byrjun nóvember en formannsskipti fara fram á þingi KÍ í apríl á næsta ári.