Heiminn vantar um 50 milljónir kennara til starfa

Fréttir|3. desember 2025

Það þarf að bregðast tafarlaust við hnattrænum kennaraskorti. Auka þarf virðingu fyrir kennarastarfinu, hækka laun og styðja betur við faglegt starf í skólum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svokallaðri Santiago-yfirlýsingu sem var samþykkt á Heimsráðstefnu kennara í Chile síðsumars.

Fulltrúar stjórnvalda, kennarasamtaka, alþjóðastofnana og ungmennahreyfinga, frá öllum heimhlutum, sendu frá sér yfirlýsingu að lokinni Heimsráðstefnu kennara sem fór fram í Santiago í Chile síðsumars. Santiago-yfirlýsingin hefur að geyma allsherjarákall um að auka veg og virðingu kennarastarfsins, bæta kjör og styðja vel við fagmennsku í skólastarfi. 

Kennaraskortur er risavaxið vandamál í heiminum og er meginefni skýrslu sem gefin var út í kjölfar fyrrnefndrar ráðstefnu. Þar segir að samkvæmt gögnum UNESCO vanti um 44 milljónir kennara á grunn- og framhaldsskólastigi og sex milljónir kennara á leikskólastigi eigi að tryggja öllum börnum réttinn til menntunar fyrir árið 2030. 

Yfirstandandi kennaraskortur leiðir nú þegar til skertra gæða í kennslu og of fjölmennra bekkja, einkum á fátækari svæðum. Þar með ríkir ójöfnuður meðal barna heims. Þá er í skýrslunni lýst áhyggjum af því að félagsleg staða kennara fari víða versnandi og það hafi í för með sér að færri velji sér kennslu sem ævistarf. 

UNESCO hélt ráðstefnuna í samstarfi við ríkisstjórn Chile. Ráðstefnan var haldin í tengslum við fund stýrihóps sem fjallar um Heimsmarkmið um menntun 2030. 

Raddir kennara í forgrunni

„Santiago-yfirlýsingin sýnir kraftinn sem býr í skipulögðum kennarasamtökum sem tala einni röddu," sagði David Edwards, aðalritari Alþjóðasamtaka kennara (Education International) í frétt um Santiago-yfirlýsinguna sem var birt á vef EI.

„Við förum heim með meira en bara orð á blaði, við höfum umboð til breytinga í farteskinu. Yfirlýsingin staðfestir það sem við höfum alltaf vitað; án kennara er engin framtíð. Hin eiginlega vinna hefst nú, að halda stjórnvöldum ábyrgum fyrir þessum skuldbindingum og tryggja að raddir kennara verði áfram í forgrunni er kemur að stefnumótun í menntamálum," sagði Edwards jafnframt. 

Manuela Mendanca, stjórnarkona í EI og fulltrúi Kennarasamtaka Portúgals (FENPROF) tók í svipan streng að lokinni ráðstefnunni. „Santiago-yfirlýsingin sýnir með ótvíræðum hætti að samband kennara og nemenda er hluti af sameiginlegri arfleifð mannkyns og ber að vernda með því að tryggja skólakerfum heims nægjanlegt fjármagn. Tækni getur aldrei komið í stað þessara mannlegu tengsla. Að verja þetta samband kennara og nemanda er að verja almenningsskóla. Það þýðir líka að gefa þarf góðan tíma til kennslu og tryggja þarf faglegt sjáfstæði kennara, svo tæknin þjóni náminu en ekki öfugt," sagði Mendanca í fyrrnefndri frétt á vef EI. 

Sex stoðir stefnumótunar

Þátttakendur Heimsráðstefnunnar kalla eftir heildstæðri stefnu í skóla- og menntamálum í hverju landi. Þar þarf að horfa til kennaramenntunar á hverjum stað, og stuðning í starfi fyrstu árin í starfi. Auk þess er kallað eftir því að kennarar hvarvetna búi við mannsæmandi kjör, vinnuálag sé ásættanlegt og faglegt sjálfstæði ríkjandi. 

Sex atriði eru tiltekin sem forgangsatriði. 

  • Alhliða stefnumótun fyrir kennara sem tekur á öllum starfsferlinum, frá nýliðun til starfsþróunar, með sérstakri áherslu á dreifbýli og vanþróuð svæði þar sem skorturinn er mestur.
  • Símenntun sem umbreytir kennaramenntun í samstarfsverkefni og tryggir skýr tengsl milli grunnmenntunar, starfsþjálfunar, handleiðslu og stöðugra tækifæra til náms.
  • Félagsleg samræða og þátttaka sem kemur á fót varanlegum og gagnsæjum leiðum fyrir þátttöku kennara í stefnumótun. Í sáttmálanum eru kennarasamtök sérstaklega viðurkennd sem lögmætir samstarfsaðilar við stjórn menntamála. 
  • Sjálfbær fjármögnun sem fer út fyrir orðræðu yfir í raunhæfar skuldbindingar, þar á meðal öflun innlendra fjármuna og nýstárlegar fjármögnunarleiðir sem vernda menntun sem almannagæði.
  • Kennsla fyrir framtíðina sem styrkir stafræna færni og gervigreindarþekkingu en varðveitir um leið mannlegu víddina í námi. Það er mikilvægt að í sáttmálanum er kallað eftir innleiðingu á hæfniramma UNESCO um gervigreind fyrir kennara.
  • Inngilding og jafnrétti sem stuðlar að fjölbreytni í kennarastéttinni og sem tekst á við kerfisbundnar hindranir sem koma í veg fyrir að jaðarsettir hópar geti gengið inn í stéttina.

Krakkar í kennslustund í Guatemala

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Meginmarkmið í menntakafla Heimsmarkmiða Saminuðu þjóðanna er að tryggður verði jafn aðgangur allra að góðri menntun og stuðlað verði að tækifæri allra til náms alla ævi. Undirmarkmiðin taka á þessu öll en þau eru eftirfarandi: 

  • 4.1 Eigi síðar en árið 2030 verði tryggt að allar stúlkur og drengir ljúki góðri grunnskólamenntun á jafnréttisgrundvelli án endurgjalds til að öðlast viðeigandi og gagnlega menntun. 
  • 4.2 Eigi síðar en árið 2030 verði tryggt að allar stúlkur og drengir eigi þess kost að þroskast og dafna frá unga aldri, fá umönnun og leikskólamenntun til að búa þau undir grunnskóla.  
  • 4.3 Eigi síðar en árið 2030 verði öllum konum og körlum tryggður jafn aðgangur að góðu tækni-, starfs- og framhaldsnámi, þar á meðal á háskólastigi, á viðráðanlegu verði. 
  • 4.4 Eigi síðar en árið 2030 hafi ungmennum og fullorðnum með hagnýta kunnáttu fjölgað umtalsvert, þar á meðal á sviði tækni- og starfsmenntunar, til þess að geta gegnt viðeigandi störfum, fengið mannsæmandi vinnu og stundað frumkvöðlastarfsemi. 
  • 4.5 Eigi síðar en árið 2030 hafi kynjamismunun í menntakerfinu verið afnumin og jafn aðgangur að námi á öllum stigum tryggður og starfsþjálfun fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, þar á meðal fyrir fatlað fólk, frumbyggja og börn sem búa við erfiðar aðstæður. 
  • 4.6 Eigi síðar en árið 2030 verði tryggt að öll ungmenni og stór hluti fullorðinna, bæði karlar og konur, hafi náð tökum á lestri og skrift og öðlast talnaskilning.
  • 4.7 Eigi síðar en árið 2030 verði tryggt að allir nemendur öðlist nauðsynlega þekkingu og færni til þess að ýta undir sjálfbæra þróun, meðal annars með menntun sem er ætlað að efla sjálfbæra þróun og sjálfbæran lífsstíl, með því að hlúa að friðsamlegri menningu, með mannréttindum, kynjajafnrétti, alheimsvitund, viðurkenndri menningarlegri fjölbreytni og framlagi menningar til sjálfbærrar þróunar.
  • 4.a Byggð verði upp og endurbætt aðstaða til menntunar fyrir börn, óháð kyni, svo að allir geti lært í öruggu og friðsamlegu umhverfi án aðgreiningar, fatlaðir sem aðrir. 
  • 4.b Eigi síðar en árið 2020 hafi námsstyrkjum sem standa þróunarlöndum til boða verið fjölgað um heim allan, einkum í þeim löndum sem eru skemmst á veg komin, þ.e. smáeyríkjum og Afríkuríkjum, til að efla háskólamenntun í þróunarlöndum, þar á meðal starfsnám og upplýsinga- og samskiptatækni, tækninám, verkfræði og raunvísindi.
  • 4.c Eigi síðar en árið 2030 verði framboð á menntuðum og hæfum kennurum aukið verulega, meðal annars með alþjóðlegri samvinnu um kennaramenntun í þróunarlöndum, einkum þeim sem eru skemmst á veg komin og smáeyríkjum.

Fara á vef Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna