Heilsuhegðun ungra Íslendinga

Nýtt vikulegt hlaðvarp um heilsu og lifnaðarhætti ungs fólks.
Heilsuhegðun ungra Íslendinga er nýtt vísindahlaðvarp um heilsu og lifnaðarhætti ungs fólks hér á landi. Hlaðvarpið byggir á samnefndri langtímarannsókn vísindamanna við Háskóla Íslands. Í hverjum þætti eru fengnir til samtals vísindamenn sem koma að rannsókninni og ræða þeir niðurstöður sínar á mannamáli við ungt fólk á framhaldsskólaaldri.
Á vef Háskóla Íslands er frétt um hlaðvarpið og þar kemur fram að það er „samtalsvettvangur fræðimanna og framhaldsskólanema og hugsað sem mikilvægur hluti þekkingarmiðlunar. Í hverjum þætti eru fengnir til samtals vísindamenn sem koma að rannsókninni og ræða þeir niðurstöður sínar á mannamáli við ungt fólk á framhaldsskólaaldri. Hver þáttur er 45 til 60 mínútur að lengd og eru þeir hugsaðir fyrir alla þá sem hafa áhuga á heilsu en ekki hvað síst fyrir ungt fólk og foreldra“.
Rannsóknin sem hlaðvarpið byggir á hefur vakið mikla athygli enda gefa niðurstöðurnar góða vísbendingu um stöðu og þróun fjölmargra heilsufarsþátta hjá þátttakendum. Enginn vafi er á því að ávinningur rannsóknarinnar er ótvíræður fyrir þróun og uppbyggingu velferðarsamfélagsins.