Heilbrigð samskipti - flækjusaga

Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber, sérfræðingur KÍ í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum, skrifar um heilbrigð samskipti í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar.
Af hverju bregðast einstaklingar misjafnlega við í sömu aðstæðum? Á meðan margir bregðast við af samkennd og yfirvegun, hlusta og virða skoðanir, viðra sínar skoðanir og ræða í rólegheitum bregðast aðrir við af æsingi, í vörn og á gagnrýninn og óyfirvegaðan hátt.
Stutta svarið er að við erum öll ólík með ólíkan bakgrunn, misgott veganesti og eigum ekki alltaf auðvelt með að orða þarfir okkar, en langa svarið... það er flækjusaga með nokkrum lausum endum.
Hvaðan komum við?
Heilbrigð samskipti í draumaheimi endurspegla mannskilning og þroska þar sem heilindi og samkennd eru í fyrirrúmi. Flækjum þetta samt aðeins. Ef samskipti eiga að ganga snurðulaust fyrir sig verðum við að huga að ýmsum þáttum í fari þeirra sem við eigum samskipti við. Þessir þættir hafa áhrif á viðbrögð okkar við aðstæðum og endurspegla bakgrunn okkar og persónueinkenni. Flestir eiga alla jafna í góðum samskiptum en þekking á þessum þáttum er af hinu góða og gott að hafa þá í huga ef samskipti ganga ekki sem skyldi. Meðvitund hvers og eins og sjálfsþekking skiptir hér máli því við berum ábyrgð á okkar samskiptum og að þau gangi vel.
Þættir eins og bakgrunnur, menning, áfallasaga, sérkenni, greiningar o.fl. hafa mikil áhrif á viðbrögð okkar í samskiptum. Allt eru þetta þættir sem hver og einn þarf að vera meðvitaður um að geti litað samskipti. Um leið og grunur vaknar um að eitthvað í lífi okkar hafi áhrif á samskiptamynstur er fullkomlega eðlilegt að leita sér aðstoðar, skoða alla fleti, velta við steinum og greiða úr fornum flækjum. Handleiðsla er ein þessara leiða og er heppileg til að uppgötva að það eru alltaf ástæður fyrir viðbrögðum okkar. Með aðstoð sérfræðinga getum við leiðrétt skekkjurnar sem hafa myndast og leyst þannig úr samskiptaflækjum upp á eigin spýtur.

Meðvitund hvers og eins og sjálfsþekking skiptir máli því við berum ábyrgð á okkar samskiptum og að þau gangi vel
Hvaða veganesti fengum við?
Einnig virðist sem veganesti okkar úr æsku, uppeldið, hafi áhrif á viðbrögð okkar við aðstæðum þar sem tungutak, skoðanir og stjórnunaraðferðir skipta máli. Þar skiptir mestu hvernig við beitum tungumálinu sem við lærðum að nota í samskiptum. Huga þarf að orðaforða og merkingu tungumálsins, hvað við segjum og hvernig. Viðhorf okkar og skoðanir endurspegla líka uppruna og bakgrunn. Hvernig við metum og dæmum annað fólk, viðhorf okkar til þeirra sem við eigum í samskiptum við og skoðanir okkar á samferðafólki.
Að lokum eru það þær aðferðir sem við beitum til að reyna að hafa stjórn á okkur sjálfum og þeim aðstæðum sem við erum í. Í sumum tilfellum þekkjum við ekki bjargráðin sem reynast best til að hafa stjórnina eða þau virka ekki en í öðrum tilfellum gleymum við einfaldlega að nýta þau. Af þessu þrennu litast viðbrögð okkar í samskiptum svo veganestið skiptir máli. Sumir hafa fengið gott og heilbrigt veganesti en það á ekki við um alla. Flestir átta sig á því með auknum þroska og aldri hvort veganestið var gott eða hvort bæta þurfi í það næringarefnum.
Hvers þörfnumst við?
Til að flækja samskiptamunstur enn frekar þurfum við að huga að þörfum þeirra sem við eigum samskipti við. Hér gæti einhver hugsað, ber ekki hver ábyrgð á sér? Og jú, það er hárrétt en með aukinni meðvitund ganga hlutirnir betur. Fæstum reynist auðvelt að skilgreina og gera sér grein fyrir eigin þörfum, en ef við ætlum að gera okkur grein fyrir þörfum annarra þurfum við að þekkja okkar eigin þarfir.
Við þekkjum sameiginlegar líkamlegar og andlegar grunnþarfir okkar sem eru þær þarfir sem við þurfum til að lifa góðu lífi. Hér er átt við t.d. annars vegar fæði, vatn, súrefni og hvíld og hins vegar skilning, stuðning, heiðarleika og tilgang (og margt fleira). En í samskiptum og samneyti við aðra verðum við að þekkja hvers við sem einstaklingar þörfnumst af öðrum og til hvers við ætlumst. Við getum ekki gert ráð fyrir að aðrir viti hvers við þörfnumst, ekki frekar en að þeir lesi hugsanir, og því er mikilvægt að hafa skilaboð skýr og segja það sem þarf umbúðalaust en af kurteisi og mestu mildi.
Við erum gjörn á að gagnrýna í stað þess að segja hvers við þörfnumst. Einnig eigum við það til að sjá frekar það sem er að í fari annarra og uppfyllir ekki okkar þarfir þegar okkur í raun og veru vantar eitthvað.
Þegar við segjum t.d.: „Þú ert alltaf í símanum, ég næ aldrei athygli“ væri betra að segja: „ÉG vil fá athygli frá þér“.
Hér er það athygli einstaklings sem við þörfnumst en í stað þess að koma okkur beint að máli málanna þá bendum við á ókost sem stuðar og veldur pirringi í áframhaldandi samskiptum. Þegar við höfum áttað okkur á þörfum okkar getum við sett fram ósk sem byggir á þessum þörfum.
Í samtali við unglinginn sem við teljum að sofi ekki nóg er líklegt að við segjum: „Þú ferð alltaf svo seint að sofa“ en í raun væri betra að segja „ÉG vil ekki að þú farir seint að sofa því það hefur áhrif á það hvernig þér líður í skólanum“ eða „ÉG vil að þú farir fyrr að sofa svo þú vaknir hress og úthvíld(-ur) í fyrramálið“. Hvort sem þetta hefur áhrif eða ekki þá veit hann hvað við viljum, til hvers við ætlumst af honum og hvers vegna.
Í samtali við samstarfsfélaga gæti okkur orðið á að segja: „Vantreystirðu mér?“ eða nota fullyrðingu eins og „þú vantreystir mér“ eða „þú skilur ekki það sem ég er að segja“. Hér væri betra að segja: „ÉG vil að þú treystir mér“ eða „ÉG vil að þú hlustir þegar ég tala og bíðir með að segja EN þangað til ég hef lokið máli mínu.“ „ÉG vil að þú sýnir mér að þú hafir skilið það sem ég sagði.“
Og þegar einhver hefur notað hárblásarann, eða réttara sagt hækkað róminn (eitthvað sem á ekki að líðast á vinnustöðum), „ÉG vil að þú talir við mig með venjulegum raddstyrk.“
Ég vil, ég þarfnast!
Hér er lykillinn að nýta svokölluð ÉG-boð, (sleppa ÞÚ-boðunum sem við vitum einmitt að virka alls ekki á nemendur okkar). Hér erum við komin á þann stað að vita hvað við viljum í samskiptunum og segja frá því í stað þess að gagnrýna hinn aðilann fyrir að gera ekki eins og við viljum.
Þetta er auðvelt að skrifa en erfitt að framkvæma og þess vegna þurfum við að æfa okkur. Við þurfum að æfa okkur í að þekkja eigin þarfir og vita hvað við viljum. Við þurfum að æfa okkur í að koma þörfum okkar í orð vegna þess að við getum ekki ætlast til að fólk viti hvað við viljum ef við komum ekki orðum að því. Og við þurfum að æfa okkur í að þora líka að orða þarfir okkar við stjórnendur.
Hér gildir gullna reglan um skýr jákvæð skilaboð, ekki hálfkveðnar vísur eða lýsingar á því sem við teljum okkur sjá eða ekki vilja. Erfiðari aðstæður kalla á flóknari samskipti en aðferðirnar eru þær sömu. Við orðum óskir okkar á einfaldan, skýran og jákvæðan máta, t.d. værirðu til í að... Gætirðu.... í stað ÉG vil... og reynum að átta okkur á óskum annarra og þörfum.

Lykillinn að sáttum er að gera tilraun til að mæta þörfum allra, hlusta og sýna samkennd.Það sagði enginn að samskipti væru einföld en með auknum skilningi á þeim þáttum sem hafa áhrif getum við bætt þau.
Auðvitað óttumst við að mótherjinn geri lítið úr þörfum okkar eða neiti óskinni en þá verðum við að vera nógu örugg til að sjá að þarfir okkar eiga jafnan rétt og annarra, þekkja vel okkar eigin óskir og þrár og standa með þeim af kurteisi og skilningi en einnig sveigjanleika.
Hér gildir að þekkja samferðafólk okkar, hafa mannskilning, þroska og sveigjanleika til að sjá að okkar þarfir mæta ekki alltaf þörfum annarra en við þurfum að ná lendingu. Við gætum þurft að rýna í þarfir annarra og orða þær í samvinnu við þá. Við gætum líka þurft að fá aðstoð sérfræðinga til að ná lendingu. Lykillinn að sáttum er að gera tilraun til að mæta þörfum allra, hlusta og sýna samkennd.
Það sagði enginn að samskipti væru einföld en með auknum skilningi á þeim þáttum sem hafa áhrif getum við bætt þau.
Hver er þá niðurstaðan?
- Við þurfum að gera okkur grein fyrir að öll erum við alls konar og komum víða að með ólíkan uppruna og mishollt veganesti fyrir lífið.
- Við þurfum að vera opin fyrir því að breyta rótgrónu hegðunarmynstri okkar og þora að leita okkur aðstoðar við það.
- Við þurfum að vita hvers við óskum og orða það á skýran hátt.
- Við þurfum að vera meðvituð um að okkar þarfir eigi jafnan rétt á sér og þarfir annarra.
- Við þurfum stundum að orða þarfir annarra til að skilja aðstæður og ná sáttum. Stundum gætum við þurft aðstoð við það.
Við berum öll sameiginlega ábyrgð á að samskipti verði heilbrigð, jákvæð og öllum til heilla.
Heimildir:
Rosenberg, Marshall (2015). Nonviolent Communicatins: A Language of Life. Puddle-Dancer Press.
Rosenberg, Marshall (2012). Living Nonviolent Communications: Practical Tools to Connect and Communicate Skillfully in Every Situation. Puddle-Dancer Press.