Heiðursfélagi Félags sérkennara á Íslandi

Fréttir|6. desember 2022

Heiðursfélagi Félags sérkennara á Íslandi 2022 er Ásthildur Bjarney Snorradóttir, sérkennari og talmeinafræðingur. Ásthildur hefur í áratugi unnið ötullega að eflingu leikskólastigsins. Hennar helsta verkefni síðast liðin ár er innleiðing þróunarverkefnisins Snemmtæk íhlutun - mál og læsi.

Heiðursfélagi Félags sérkennara á Íslandi 2022 er Ásthildur Bjarney Snorradóttir, sérkennari og talmeinafræðingur.

Ásthildur hefur í áratugi unnið ötullega að eflingu leikskólastigsins. Hennar helsta verkefni síðast liðin ár er innleiðing þróunarverkefnisins Snemmtæk íhlutun - mál og læsi. Í byrjun vann hún að þessu ein en hefur síðast liðin 3-4 ár unnið með Menntamálastofnun.

Helstu markmið verkefnisins eru að:

  • leikskólabörn nái hámarksárangri hvað varðar mál, tal og boðskipti fyrir upphaf grunnskólagöngu
  • leikskólabörn fái íhlutun og kennslu við hæfi
  • kennsla í grunnskólum byggi á niðurstöðum og áherslum leikskólans
  • stjórnendur taki leiðandi hlutverk í valdeflingu starfsfólks Að allt starfsfólk leikskóla taki þátt í innleiðingu þróunarverkefnisins Að unnið sé í anda snemmtækrar íhlutunar í daglegu starfi
  • leikskólar skrifi handbók sem lýsir málörvunarstarfi því sem fram fer í leikskólunum og hvernig ná skal markmiðum verkefnisins.

Í kringum 50 leikskólar hafa tekið þátt í verkefninu. Ásthildur hefur einnig gefið út annað hvort ein eða í samstarfi með öðrum, ógrynni af kennsluefni sem eflir málþroska barna. Til dæmis má nefna: Bækurnar um Bínu bálreiðu sem leggur grunn að boðskiptum og bingó Bókin Snemmtæk íhlutun í hnotskurn - Verkfærakista hugmynda Bókin Snemmtæk íhlutun í málörvun tveggja til þriggja ára barna Íslenski málhljóðakassinn Tölum saman - málörvunarkerfi.