Heiðra sögu og framlag Rauðsokkahreyfingarinnar

Styttan Venus verður sett á áberandi og merkingarbæran stað í Reykjavík. Viljayfirlýsing þessa efnis var undirrituð í Ráðhúsinu í dag.
Minnismerki verður reist í borgarlandi sem heiðrar sögu og framlag Rauðsokkahreyfingarninar í baráttunni fyrir jafnrétti, félagslegu réttlæti og bættum lífskjörum. Svo hljóðar inntak viljayfirlýsingar sem Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Björn Ágúst Sigurjónsson formaður fulltrúaráðs verkalýðshreyfingarinnar í Reykjavík undirrituðu í Ráðhúsinu í dag.
Minnismerkið er endurgerð styttunnar Venusar eða Sáttarinnar sem Jón Benediktsson gerði fyrir leikmynd Messíönu Tómasdóttur. Leikmyndin var notuð í leikritinu Lýsiströtu í leikstjórn Brynju Benediktsdóttur. Þetta var árið 1970. Rauðsokkur fengu styttuna lánaða og báru hana í kröfugöngu 1. maí sama ár. Talið er að þessi viðburður hafi markað upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar.
Í viljayfirlýsingunni kemur fram að minnismerkið verði staðsett á áberandi, aðgengilegum og merkingarbærum stað í borginni í samráði við gefanda verksins. „Verkefnið skal styðja við menningarlega sjálfsmynd Reykjavíkur sem jafnréttisborg og vera hluti af víðtækari viðleitni til að gera sýnilegt framlag kvenna í opinberu rými. Unnið verður sameiginlega að undirbúningi, fjármögnun og framkvæmd verkefnisins, og tryggja að minnismerkið verði reist með virðingu fyrir baráttusögu kvenna og framtíðarsýn um réttlæti og jöfnuð í samfélaginu," segir í yfirlýsingunni.

Venusarstyttan sást síðast í kröfugöngu 1. maí síðastliðinn og vakti verðskuldaða athygli. Formaður KÍ var í hópi þeirra sem báru styttuna.
50 ár frá kvennafrídeginum
Á Kvennaárinu 2025 er haldið upp á þau tímamót að 50 ár eru frá því að konur lögðu fyrst niður störf á Íslandi til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna í samfélaginu. Á þeim sögulega degi lögðu 90% kvenna niður störf og frá þeim tíma hefur samfélag okkar tekið miklum breytingum í átt að auknu jafnrétti.
Baráttunni er hins vegar alls ekki lokið og á morgun er búið að blása til Kvennaverkfalls á ný. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og sjö fulltrúar skipuleggjenda Kvennaverkfallsins drógu upp átta baráttufána í fallegu veðri við brúna við ráðhúsið í dag.

Gerður G. Óskarsdóttir, fyrrverandi kennari, fræðslustjóri og ein af stofnendum Rauðsokkahreyfingarinnar, og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, fögnuðu því í dag að Venusarstyttunni verði fundinn góður staður til framtíðar.