Hegðunarvandi, samskipti, ofbeldi og áskoranir í skólastarfi

Fréttir|12. ágúst 2025

Félag sérkennara á Íslandi stóð fyrir námskeiðinu Hegðun, samskipti, ofbeldi í skólastarfi í Dalskóla 12. ágúst 2025.Á námskeiðinu fengu þátttakendur innsýn í helstu áskoranir sem tengjast hegðunarvanda, samskiptum, ofbeldi og öðrum erfiðleikum í skólastarfi. Námskeiðið miðaði að því að efla færni þátttakenda í að greina, bregðast við og leysa vandamál sem kunna að koma upp í skóla- og kennarastarfi. Helstu markmið voru forvarnir og fræðsla, helstu orsakir hegðunarvanda og ofbeldis í skólaumhverfi. Þáttakendur lærðu aðferðir við að styðja nemendur í erfiðleikum og stjórna hegðun. Kennarar voru þær Soffía Ámundadóttir, kennari við Menntavísindasvið HÍ og verkefnastjóri Nýmennt, Arnrún María Magnúsdóttir leikskólakennari og einn af höfundum Lausnahringsins og Katrín Rut Þorgeirsdóttir hegðunarráðgjafi. Við tókum upp erindin þeirra og birtum þau hér tímabundið.

Félag sérkennara á Íslandi stóð fyrir námskeiðinu Hegðun, samskipti, ofbeldi í skólastarfi í Dalskóla 12. ágúst 2025.

Á námskeiðinu fengu þátttakendur innsýn í helstu áskoranir sem tengjast hegðunarvanda, samskiptum, ofbeldi og öðrum erfiðleikum í skólastarfi. Námskeiðið miðaði að því að efla færni þátttakenda í að greina, bregðast við og leysa vandamál sem kunna að koma upp í skóla- og kennarastarfi. Helstu markmið voru forvarnir og fræðsla, helstu orsakir hegðunarvanda og ofbeldis í skólaumhverfi. Þáttakendur lærðu aðferðir við að styðja nemendur í erfiðleikum og stjórna hegðun. 
Kennarar voru þær Soffía Ámundadóttir, kennari við Menntavísindasvið HÍ og verkefnastjóri Nýmennt, Arnrún María Magnúsdóttir leikskólakennari og einn af höfundum Lausnahringsins og Katrín Rut Þorgeirsdóttir hegðunarráðgjafi. 

Við tókum upp erindin þeirra og birtum þau hér tímabundið.

Erindi Katrínar er hér og skjákynning hennar hér.

Erindi Arnrúnar Maríu er hér og skjákynning hennar hér.

Erindi Soffíu er hér og skjákynningin hennar hér.