Hegðunarvandi barna ræddur á fræðsludegi FÍS
Fréttir|18. ágúst 2021

Félag íslenskra sérkennara hélt fræðsludag fyrr í mánuðinum. Vegna COVID-19 var fræðslufundurinn haldinn á netinu. Félagið hefur gert upptökur að erindum aðgengilegar.
Þema fræðsludags Félags íslenskra sérkennara (FÍS) var hegðunarvandi barna og hvaða leiðir eru færar í þeim málaflokki. Um hundrað manns tóku þátt í fræðslufundinum sem fór fram á netinu. Fimm fyrirlestar voru haldnir og hefur FÍS ákveðið að gera upptökur og skjákynningar aðgengilegar á vef félagsins, svo fleiri geti notið.
Fyrilestrarnir voru eftirfarandi
- Sesselja Árnadóttir kennsluráðgjafi hjá farteymi austur, Reykjavíkurborg, fjallaði um einstaklingsmiðaðar stuðningsáætlanir byggðar á virknimati. Hér er hægt að hlusta á fyrirlesturinn og skjákynning er hér. Sesselja deilir einnig með okkur bæklingum: Hrós, jákvæð athygli, Reglur og agi, Hvatning fyrir allan bekkinn.
- Unnur Björk Arnfjörð Jóhönnudóttir verkefnastjóri, kynnti Upright, samevrópskt verkefni sem stuðlar að vellíðan unglinga með því að efla seiglu þeirra og getu
til að takast á við krefjandi verkefni unglingsáranna. Hér er hægt að hlusta á fyrirlesturinn og skjákynning er hér. - Arndís Þorsteinsdóttir sálfræðingur, kynnti PMTO - Parent Management Training –Oregon meðferðarprógramm ætlað foreldrum barna með hegðunarerfiðleika. Hér er hægt að hlusta á fyrirlesturinn og skjákynning er hér.
- Steinunn Hafsteinsdóttir og Rafn Emilsson fagstjórar í Arnarskóla, kynntu starf skólans og hvernig þau vinna með atferlismótun og hugmyndafræðina á bak við starfið. Hér er hægt að hlusta á fyrirlesturinn og skjákynning er hér.