Hefurðu kynnt þér niðurstöður könnunar KÍ?

Niðurstöður könnunarinnar sem gerð var meðal félagsfólks KÍ eru aðgengilegar hér á vefnum. Þá er hægt að horfa á fyrirlestra og umræður sem fóru fram á ráðstefnunni Skóli nútíðar – vegvísir til framtíðar í apríl síðastliðnum. Gott lesefni og sjónvarp!
Nýverið kom út niðurstöðuskýrsla Félagsvísindastofnunar HÍ þar sem kynntar eru niðurstöður viðhorfs- og þjónustukönnunar KÍ. Margir muna sjálfsagt eftir könnun KÍ sem fór fram í febrúar á þessu ári. Þátttakan var firnagóð en um helmingur félagsmanna tók þátt – og þykir það gott í könnun af þessu tagi.
Markmiðið með könnuninni var meðal annars að kanna hug félagsmanna til kennarastarfsins, skólastarfs almennt, þjónustu KÍ og lykilþátta ETUCE er varða kennarastarfið. Í kjölfar könnunarinnar efndi Kennarasambandið til ráðstefnu, sem bar yfirskriftina Skóli nútíðar – vegvísir til framtíðar, í Hörpu í apríl síðastliðnum.
Ráðstefnan var afar vel sótt og var kafað í efni könnunarinnar með ýmsum hætti, í fyrirlestrum og á umræðutorgum. Áherslur og afstaða kennara, stjórnenda og námsráðgjafa er fróðlegt lesefni.
Mikilvægt er að raddir skólafólks séu í forgrunni umræðunnar. Það býr þekking í þeim mannauði sem valið hefur sér þann vettvang að tryggja gæðamenntun og efla farsæld á vettvangi ólíkra skólastiga og skólagerða. Á undanförnum árum hefur komið upp að í umræðu um málefni menntunar sé frekar talað um skólafólk en við það og þá einmitt út frá þröngu sjónarhorni hvers atviks," sagði Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, í ræðu sinni á ráðstefnunni.
Félagsmenn sem ekki áttu heimangengt geta skoðað efni ráðstefnunnar hér.
Þá er í ítarleg umfjöllun í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar.

Raddir skólafólks eiga að vera í forgrunni þegar rætt er um skólamál
Umræðan mun halda áfram
Átta umræðutorg fóru fram á ráðstefnunni og voru umfjöllunarefnin margvísleg. Niðurstöður könnunarinnar og efni ráðstefnunnar er mikið að vöxtum og fram undan er vinna innan Kennarasambandsins, og á vettvangi aðildarfélaganna, þar sem unnið verður með efni og vísbendingar sem fram koma í könnuninni.
„Raddir ráðstefnunnar verða raddir skólafólks. Þegar kemur að því að efla og bæta skólastarf, og auka gæði menntunar, verður hægt að sækja í könnunina; efni hennar er vegvísir til framtíðar. Fyrir liggja skólastefnur, námskrár, lög og reglugerðir um skólastarf. Við skólafólk vitum að vettvangur þeirra verkefna liggur víða um stjórnkerfið og fer um ólík svið samfélagsins. Það er á allra ábyrgð að í þeirri vinnu sem miðar að því að gera öflugt skólastarf enn betra verði raddir skólafólks í fyrirrúmi!" skrifaði Magnús Þór, formaður KÍ, í grein á ráðstefnudaginn.