Hefur alltaf heillast af tungumálum

„Ég tel að tungumálanám sé mjög gott fyrir alla. Þegar við lærum nýtt tungumál þá opnum við hugann og víkkum sjóndeildarhringinn. Það er mannbætandi,“ segir Katrín Högnadóttir kennari, í samtali við Skólavörðuna.
Katrín Högnadóttir er þýskukennari við Menntaskólann á Egilsstöðum. Hún er auk þess fráfarandi formaður í Félagi þýzkukennara, sem er afar blómlegt fagfélag með um fimmtíu félaga innanborðs. Skólavarðan sló á þráðinn austur og spurði Katrínu út í tungumálanám og starfsemi félagsins.
Katrín er fyrst spurð af hverju hún hafi lagt þýsku fyrir sig. „Ég hef alltaf heillast af tungumálum og þegar ég var í menntaskóla þá tók ég alla áfanga sem voru í boði í dönsku, frönsku, spænsku og þýsku. Mér þóttu öll tungumálin skemmtileg en einhverra hluta vegna vó þýskan alltaf þyngst,“ segir Katrín og bætir við að kannski hafi rannsóknarlögreglumaðurinn Derrick haft áhrif.
„Við mamma horfðum alltaf á Derrick í sjónvarpinu þegar ég var stelpa. Ætli hann hafi ekki bara haft þessi áhrif á mig. Lengi býr að fyrstu gerð, ekki satt?“
Lykillinn að samskiptum
Hver er staða þýskunnar í framhaldsskólum? Katrín á svar við því.
„Það er misjafnt eftir skólum og við sjáum líka sveiflur milli ára. Víðast hvar í framhaldsskólum eru tvö erlend tungumál í boði og hér í ME hafa fleiri nemendur valið spænskuna undanfarin misseri. Hvort það stafar af tíðari ferðum Íslendinga á sólarstrendur veit ég ekki. Ég hef töluverðar áhyggjur af „þriðja tungumálinu“ yfir höfuð og veit að það er uggur í fleiri kennurum,“ segir Katrín.
Hún segir að áhyggjur tungumálakennara hafi síðustu ár að hluta til beinst að þýðingarvélum á netinu, sem geta þýtt heilu og hálfu bækurnar fyrir nemendur. Nú hefur gervigreindin komið inn af krafti.
„Það má segja að landslagið nú í námi almennt sé ekki ósvipað því sem var í tungumálanámi þegar þýðingarvélarnar komu fram fyrir þó nokkuð mörgum árum. Hlutirnir eru að breytast hratt en ég vil ekki trúa því að kennsla þriðja tungumáls detti alveg út í framhaldsskólunum. Við getum ekki og megum ekki stinga höfðinu í sandinn og þurfum því að vera fljót að átta okkur á nýju umhverfi og tileinka okkur nýjar leiðir og kennsluhætti í tungumálanáminu,“ segir Katrín.
Við þurfum að vera fljót að átta okkur á nýju umhverfi og tileinka okkur nýjar leiðir og kennsluhætti í tungumálanáminu
En það er fleira sem herjar á tungumálanám í framhaldsskólum, nefnilega stytting náms til stúdentsprófs. Katrín tekur undir það og segir meginbreytinguna þá að flestir nemendur taki bara þrjá áfanga í þriðja tungumálinu í kjarna brautar en áður voru áfangarnir fjórir.
„Í minni skólum hefur þetta í för með sér að fjórði áfanginn er með öllu dottinn út. Málabrautin er víða ekki lengur við lýði sem þýðir að ekki er boðið upp á efri áfanga lengur. Þetta gerir það að verkum að dýptin í tungumálanáminu verður minni en ella – og líklegra að nemendur fari á mis við hluti á borð við sögu, menningu og bókmenntir í tengslum við tungumálið. Flestir kennarar gera sitt besta við að koma þessum atriðum inn, en það er ekki svo auðvelt í neðri áföngum þar sem kenna þarf ákveðinn grunn,“ segir Katrín.
Tungumálanám er mikilsvert að sögn Katrínar enda lykill að samskiptum. „Tungumálanám snýst fyrst og síðast um samskipti fyrir mér og er um leið lykill að möguleikum til leiks og starfs í öðrum löndum. Ég hef þá trú að þegar fólk lærir að tala nýtt tungumál þá öðlist það innsýn í aðra menningu og úr því komi meira umburðarlyndi og gagnkvæmur skilningur. Ef heiminn skortir eitthvað þá er það einmitt þetta tvennt,“ segir Katrín.
Þýska hefur verið kennd hér á landi um langa hríð, að minnsta kosti síðan um miðja nítjándu öld. Þá var þýskan kennd í Lærða skólanum. Áður höfðu margir lært hana sjálfir.
Katrín er spurð hvort þýskan sé auðveld fyrir okkur sem tölum íslensku. „Já, það má segja að það liggi vel fyrir okkur að læra þýsku, enda eru töluverð líkindi milli málkerfa þessara tveggja tungumála. Fyrir það fyrsta eru bæði málin germönsk og því kannski ekki skrýtið að sumir nemendur, sem hafa lagt stund á íslensku, ensku og dönsku, tali um að þýskan sé fyrir þeim eins og týnda stykkið í málapúslinu,“ segir Katrín.

Glæsileg ungmenni fá viðurkenningu fyrir Þýskuþrautina.
Athöfnin fór fram á uppskeruhátíð félagsins 16. mars. síðastliðinn.
Margt um að vera
Eftir þessa yfirferð á stöðu þýskunnar og tungumálanáms í framhaldsskólum víkur talinu að Félagi þýzkukennara. Félagið á sér langa sögu, var stofnað árið 1970 og hefur starfað æ síðan. Sporgöngumaður að stofnun félagsins var Baldur Ingólfsson þýskukennari við MA og MR. Þau sem eru komin á miðjan aldur muna eftir fjölmörgum kennslubókum Baldurs.
Um fimmtíu þýskukennarar, víða um land, eru í félaginu.
„Það er alltaf eitt og annað á döfinni í félaginu. Við erum nýbúin að halda DaF-Tag, en hann samanstóð af aðalfundi, fræðsluerindum og uppskeruhátíð þar sem veitt voru verðlaun til nemenda fyrir góðan árangur í Þýskuþrautinni og stuttmyndakeppni. Þetta var afar ánægjulegt og tókst vel. Í byrjun árs hlustuðum við á erindi sérfræðings, hjá Herder-stofnuninni við Leipzig-háskóla, um gervigreind og svokölluð snjallyrki. Þá fengum við flott boð frá þýska sendiráðinu í lok síðasta árs en þá kom Darius Zander tónlistarmaður til landsins og heimsótti nokkra skóla. Hann bauð upp á vinnustofur í tónlist sem þóttu takast afar vel,“ segir Katrín.
Mikilvægi félagsskapar á borð við Félag þýzkukennara er óumdeilt. Félagið heldur úti vefsíðu þar sem er að finna fréttir af viðburðum og tengla á áhugavert efni fyrir þýskukennara. „Félagið hefur veitt mér mikinn stuðning sem ég er mjög þakklát fyrir. Það getur verið talsverð áskorun að vera eini þýskukennarinn við lítinn skóla úti á landi og því dýrmætt að geta leitað til annarra sem fást við sama fag. Einnig fannst mér gefandi að taka þátt í stjórn félagsins, því þannig fær maður jú betri innsýn í starf þess og um leið tækifæri til að styrkja tengslin við aðra innan fagsins til muna,“ segir Katrín Högnadóttir.
Þýskuþrautin, um hvað snýst hún?
Þýskuþrautin er í raun próf sem kennarar leggja fyrir sína þýskunemendur á framhaldsskólastigi. Hún samanstendur af lesskilningi, orðaforða, málfræði og málnotkun, ritun og þekkingu á landi og þjóð. Tvö þyngdarstig eru í þrautinni, þannig að stig 1 er lagt fyrir byrjendur í þýsku og stig 2 fyrir lengra komna.
Þýskuþrautin hefur síðustu ár verið samin af kennara innan félagsins og undanfarin tvö ár höfum við verið svo lánsöm að fá fjárhagslegan stuðning frá Goethe Institut til þess. Þýskuþrautin er auglýst innan skólanna og fyrir marga þátttakendur eru verðlaunin eftirsóknarverð, en það eru ferðir út til Þýskalands.
Vanalega hafa tvö prógrömm verið í boði, annars vegar svokallað PAD og hins vegar Eurocamp. PAD er verkefni á vegum þýska menntamálaráðuneytisins og stuðlar að evrópskum og alþjóðlegum samskiptum í skólageiranum. Því miður er PAD ekki í boði í ár vegna samdráttar, en í mörg ár hefur Ísland sent sína fulltrúa þangað.
En við erum þakklát fyrir að Eurocamp skuli vera í boði, en þangað fara í ár þrír íslenskir framhaldsskólanemendur. Eurocamp eru alþjóðleg ungmennaskipti sem hafa verið til í yfir 30 ár. Þá hittast ungmenni hvaðanæva úr Evrópu og kynnast annarri menningu, vinna saman í vinnustofum, skiptast á hugmyndum og hafa gaman. Prógrammið er alltaf haldið á mismunandi stöðum innan sambandsríkisins Sachen-Anhalt. Efstu nemendur á hvoru þyngdarstigi fyrir sig (sem orðnir eru 18 ára gamlir) fá boð um að fara út. Í ár og í fyrra var svo dregið um hver fengi þriðja miðann í Eurocamp. Fyrir utan ferðaverðlaunin eru einnig veitt 15-20 bókaverðlaun, sem þýska sendiráðið á Íslandi gefur, fyrir góða frammistöðu í Þýskuþrautinni,“ segir Katrín Högnadóttir.