Hefðbundið starf í leik- og grunnskólum hefst í byrjun maí

Stjórnvöld kynntu í dag fyrirhugaðar tilslakanir á samkomubanni vegna COVID-19.
Aflétting samkomubanns vegna COVID-19 var kynnt á blaðamannafundi stjórnvalda í hádeginu í dag. Þar greindi Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra frá því að skólastarf í leikskólum og grunnskólum verði með eðlilegum hætti frá og með 4. maí næstkomandi.
Fjöldamörk samkomubanns munu miðast við 50 manns frá og með 4. maí en nú er miðað við 20 manns. Þetta á við skólahald í framhaldsskólum og háskólum – þar mun gilda meginregla um hámark fimmtíu einstaklinga í sama rými. Reglan um tveggja metra fjarlægð helst óbreytt.
Þá verður skipulagt íþróttastarf barna á leik- og grunnskólaaldri heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum: Ekki mega vera fleiri en 50 börn í hóp og halda skal tveggja metra fjarlægð eftir því sem það er unnt, einkum hjá eldri börnum.
Annað skipulagt íþróttastarf er heimilt utandyra þó með þeim takmörkunum að ekki æfi eða leiki fleiri en fjórir einstaklingar saman. Snertingar eru óheimilar og virða skal tveggja metra regluna.
Frétt á vef Stjórnarráðs Íslands
Vefsíða Landlæknis um COVID-19