Haustútgáfa Skólavörðunnar komin út

Fréttir|4. desember 2023

Gervigreind í skólastarfi, málefni leikskólans, raddir kennara, móttaka erlendra nemenda og nýjasta nýtt frá Orlofssjóði er meðal efnis í Skólavörðunni.

Haustblað Skólavörðunnar er komið út og dreifing í alla skóla landsins stendur yfir.

Skólavarðan er að vanda fjölbreytt er kemur að greinum, viðtölum og pistlum.

Kennarar vítt og breitt um landið voru teknir tali og er fróðlegt að heyra hvað þeir hafa fram að færa. Sigurður Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda leikskólakennara, greinir frá því sem helst brennur á hans félagsfólki.

Gervigreind í skólastarfi er til umfjöllunar og tveir sérfróðir kennarar koma með góða punkta og ráð í þeim efnum.

Þá er fjallað um Evrópusamstarf, lífeyrismál, nýtt námsefni og smáforrit, grænfánaverkefni og sagt er frá uppskriftinni að velsældarkennara.

Margt annað fræðandi og skemmtilegt efni er að finna í blaðinu.

Lesa Skólavörðuna

Skólavarðan, málgagn Kennarasambands Íslands, kemur út á prenti tvisvar á ári. Blaðið hóf göngu sína árið 2001.