Haustútgáfa Skólavörðunnar er komin út

Framúrskarandi íþróttastarf, Íslenskubrú Breiðholts, nýr námsvefur og húfuprjón gegn einelti. Skólavarðan er stútfull af áhugaverðu efni að vanda og fastir liðir eru á sínum stað.
Viðtöl, greinar, pistlar og allt það helsta fylla síður haustblaðs Skólavörðunnar, sem er á leið í alla skóla landsins, venju samkvæmt. Hægt er að glugga í netútgáfuna nú þegar og greinar úr blaðinu verða birtar á vef að vanda á næstu dögum.
Rætt er við Örvar Rafn Hlíðdal, kennara ársins um framúrskarandi íþróttakennslustarf hans í Flóaskóla í Flóahreppi og frábæran árangur þeirra í Skólahreysti þrátt fyrir að nemendafjöldinn sé tiltölulega smár og ekkert íþróttahús við skólann.
Þá er rætt við Magnús Þór Jónsson, formann Kennarasambandsins, um verkefni síðustu missera, kjarabaráttu, virðismatsvegferð, stefnu sambandsins og framtíðarsýn Magnúsar. „Ég vil að skólinn sé fyrir alla og að við teygjum okkur eins langt og þarf til að hver einasti einstaklingur fái að njóta sín á eigin forsendum," segir formaðurinn.

Stundum eru það einmitt þeir nemendur sem hafa engan sérstakan áhuga sem blómstra mest þegar þau fá réttan stuðning og tækifæri. -Örvar Rafn Hlíðdal, kennari ársins
Svava Jónsdóttir ræðir við þau Pál Ásgeir Torfason, stafrænan leiðtoga hjá MMS, um hvernig gervigreind getur nýst við kennslu, og Ástu Bjarneyju Elíasdóttur, skólastjóra Breiðholtsskóla, um verkefni hverfisins, Íslenskubrú Breiðholts, sem snýr að mótun og miðlun íslensku sem annars tungumáls.
Fjallað er um nýjan námsefnisvef Sólrúnar Harðardóttur kennara og námsefnishöfund um náttúru Reykjavíkur. Hún segir markmiðið vera að hvetja til útiveru og nýta nánasta umhverfi í námi. En finna má m.a. upplýsingar um landslag, þróun byggðar, búsvæði lífvera, náttúruvernd og áhugaverða staði í Reykjavík, á hinum efnismikla vef.
Skólamálaþing og 25 ára afmæli Kennarasambandsins, erlent samstarf og stafrænt ofbeldi er á meðal viðfangsefna ásamt fleiru spennandi og fræðandi efni. Þá eru fastir liðir eins og Félaginn, Hver er maðurinn, Skólavarðan mælir með og Einu sinni var að sjálfsögðu á sínum stað, ásamt auðvitað krossgátunni góðu.