Haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2023 komin út

Grunntímakaup hækkaði um 9,4% á tímabilinu nóvember 2022 til júlí 2023. Þetta kemur fram í nýútgefinni haustskýrslu Kjaratölfræðinefndar 2023.
Kjaratölfræðinefnd (KTN) gefur út haust- og vorskýrslu ár hvert. Í skýrslu nefndarinnar haustið 2023 er fjallað um þróun efnahagsmála og launa í yfirstandandi kjarasamningalotu sem og uppgjör vegna síðustu kjarasamningalotu árin 2019 til 2022.
- Hér er hægt að kynna sér skýrsluna í heild.
Hækkun í samræmi við kjarasamninga
Á tímabilinu nóvember 2022 til júlí 2023 hækkaði grunntímakaup um 9,4%. Breytingar á grunntímakaupi endurspegla best umsamdar launahækkanir í kjarasamningum. Á tímabilinu hækkaði verðlag um 6,2% og kaupmáttur grunntímakaups jókst því samtals um 3,0% frá nóvember 2022 til júlí 2023.
Hjá félögum innan Starfsgreinasambandsins, auk Eflingar og BSRB, hækkaði grunntímakaup meira en hjá iðnfélögum, félögum innan Landssambands íslenskra verslunarmanna, BHM og KÍ. Það skýrist af því að hjá hópum þar sem launastig er að meðaltali lægra skiluðu krónutöluhækkanir hlutfallslega meiri launahækkunum.
- Skoða vef Kjaratölfræðinefndar.
Meðallaun í maí 2023 voru hæst á almennum markaði og hjá ríkinu. Grunnlaun og regluleg laun voru hæst á almenna markaðnum en regluleg heildarlaun hæst hjá ríkinu. Ríkið greiddi hæstu miðgildislaun á alla þrjá mælikvarða launa, þau voru næst hæst á almennum markaði og loks hjá Reykjavíkurborg og öðrum sveitarfélögum.
Síðasta kjarasamningslota gerð upp
Í skýrslunni er einnig að finna uppgjör á síðustu kjarasamningslotu sem stóð yfir árin 2019 til 2022. Á tímabilinu mars 2019 til nóvember 2022 hækkaði grunntímakaup um 27,2% á heildina litið.
Hækkunin var minnst á almenna markaðinum eða 25,9%. Hjá ríkinu hækkaði grunntímakaup um 27,9%. Hækkunin var mest hjá sveitarfélögum þar sem grunntímakaup hækkaði um 35,9% hjá Reykjavíkurborg og 33,7% hjá öðrum sveitarfélögum. Mismunandi hlutfallshækkanir skýrast að hluta til af því að hjá hópum þar sem launastig er að jafnaði lægra skila krónutölubreytingar hlutfallslega meiri launahækkunum.

Spár gera ráð fyrir að verðbólga muni fara hægt lækkandi
Þá er í skýrslunni fjallað um þróun helstu efnahagsstærða á síðustu tveimur kjarasamningstímabilum. Hagvöxtur á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins 2023 var að meðaltali 4,3% en 7,2% árið 2022. Ársverðbólgan lækkaði úr 10,2% í febrúar á þessu ári í 8,0% í nóvember og gera spár ráð fyrir að verðbólga muni fara hægt lækkandi.
Söguleg fjölgun starfandi einstaklinga
Heildarfjöldi starfandi einstaklinga jókst á ný frá ársbyrjun 2021 eftir samdrátt við upphaf kórónuveirufaraldursins. Síðan hefur fjölgunin verið mikil í sögulegu samhengi. Þó hægt hafi á fjölgar fólki á vinnumarkaði enn nokkuð hratt. Á síðasta ári var fjölgun starfandi mest einkennandi í greinum ferðaþjónustu.
Upplýsingar um fjölda lausra starfa og ráðningaráform stjórnenda gefa til kynna að spenna ríki á vinnumarkaði en að dregið hafi úr þeirri spennu á síðustu mánuðum.