Haustopnun Orlofssjóðs nálgast

Fréttir|16. maí 2025
Gaggainn, gamli grunnskólinn á Siglufirði, er orðinn að flottu íbúðarhúsi.

Opnað verður fyrir haustbókanir Orlofssjóðs klukkan sex síðdegis þriðjudaginn 20. maí næstkomandi.

Opið verður fyrir bókanir á öllum eignum Orlofssjóðs og nokkrum leigueignum. Tímabilið nær frá 29. ágúst 2025 til 5. janúar 2026. Reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“ gildir við bókanir.

Orlofssjóður vinnur að því að bæta framboð sitt til félagsmanna með því að festa kaup á fleiri eignum um allt land. Verið er að leggja lokahönd á nýtt hús í Úlfsstaðaskógi sem verður þriðja hús sjóðsins í skóginum. Einnig var verið að festa kaup á annarri íbúð í gamla gagganum á Siglufirði.