Haustopnun Orlofssjóðs

Fréttir|15. maí 2023

Opnað verður fyrir haustbókanir klukkan sex síðdegis mánudaginn 22. maí næstkomandi. Við opnum fyrir bókanir á öllum eignum Orlofssjóðs og nokkrum leigueignum og nær tímabilið frá 18. ágúst 2023 til 10. janúar 2024.

Nú ættu allir að vera búnir að negla sumarfríin í dagbækur og aðrar ferðaskipulagsskruddur og því kominn tími til að huga að haustinu blíða. Haustið færir okkur frískan andvara, berjamó, rökkur og rómantík sem kjörið er að nýta til að njóta samveru í sumarbústað. Því er gleðilegt að kynna haustopnun Orlofssjóðs KÍ mánudag 22. maí kl 18:00 þar sem reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“ gildir. Við opnum fyrir bókanir á öllum eignum Orlofssjóðs og nokkrum leigueignum og nær tímabilið frá 18. ágúst 2023 til 10. janúar 2024.

Hægt er að skoða og bóka á Orlofsvef KÍ.

Orlofssjóður hefur eignast tvo nýja bústaði í landi Úlfsstaðaskógar rétt fyrir utan Egilsstaði og er þetta í fyrsta skiptið sem þeir verða bókanlegir. Þetta eru bústaðir sem verið er að byggja og munu hýsa 6-8 manns. Báðir bústaðir eru rúmgóðir með stórum viðarpalli og heitum potti. Það er von stjórnar að þeir muni nýtast félögum á norður- og austurlandi sérstaklega vel.

Þá bera að nefna að áskorun um að fella niður punktafrádrátt yfir vetrartímann sem kom fram á þingi KÍ í nóvember 2022 verður mætt að hálfu. Héðan í frá leigjast allar eignir sjóðsins punktalaust á virkum dögum yfir haust- og vetrartímabilið. Það er nýtt að þetta gildi um Vörðuleitið í Reykjavík og nýtist best félögum sem sækja þurfa þjónustu í höfuðborgina.

Á mánudaginn verður einnig opnað fyrir bókanir í eina nótt sumarið 2023 í flestum eignum Orlofssjóðs þótt ekki sé hægt að bjóða upp á það með eignir sem sjóðurinn leigir af öðrum.

Að lokum er minnt á netfang Orlofssjóðs, orlof@ki.is ef einhverjar spurningar vakna.