Haustnámskeið fyrir stjórnendur leikskóla
Haust í sveitinni – stjórnendur í leikskólum í forystu er yfirskrift námskeiðs sem Félag stjórnenda í leikskólum efnir til í samstarfi við Háskólann á Bifröst. Með námskeiðinu gefst tækifæri til að sinna starfsþróun sinni á fallegum stað í góðum félagsskap jafningja. Námskeiðið er sérstaklega ætlað til að efla aðstoðarleikskólastjóra og leikskólastjóra
sem stjórnendateymi.
Markmiðið er að auka faglega og hagnýta þekkingu stjórnenda í leikskólum og efla þá sem leiðtoga á vettvangi þannig að þeir verði hæfari til að takast á við þau krefjandi verkefni sem þeim mæta í leikskólanum í dagsins önn. Námskeiðið er sambland af fróðleik í formi fyrirlestra, hagnýtra verkefna og hópeflis.
Fyrirlesarar og leiðbeinendur verða Sirrý, Haraldur Daði Ragnarsson og Geirlaug Jóhannsdóttir. Dagskrá og nánari upplýsingar.
Heildarverð fyrir námskeiðið er 57.000 kr. Afsláttur er veittur ef tveir þátttakendur skrá sig úr sama skóla en þá er heildarverð 110.000 kr. fyrir tvo.
Athugið að hægt er að sækja um styrk í Vísindasjóð FL/FSL.
Námskeiðið fer fram á Bifröst í Borgarfirði þriðjudaginn 10. nóvember til miðvikudagsins 11. nóvember 2015.