Haustfundur samráðsnefndar FSL
Samráðsnefnd Félags stjórnenda leikskóla heldur haustfund dagana 27. og 28. ágúst á Hótel Húsafelli í Borgarfirði. Aðal umræðuefni fundarins verður kjarasamningsgerðin framundan en Oddur Jakobsson, hagfræðingur KÍ, mun þar fara yfir stöðu mála. Meðal þess sem hann mun ræða er kjarasamningaumhverfið í landinu, hugsanlegur kostnaður af kröfum félagsins og möguleg áhrif þeirra. Eins verður á dagskrá öflug liðsheildarvinna auk þess sem sveitarstjóri Borgarbyggðar og nýráðinn yfirmaður leikskólamála, Anna Magnea Hreinsdóttir doktor í leikskólafræðum mæta á fundinn.
Hefð er fyrir því að skoða leikskóla í því byggðalagi þar sem samráðsfundirnir eru haldnir og að þessu sinni verður leikskólinn á Hnoðrabóli í Reykholtsdal heimsóttur.
Samráðsnefndin er þannig skipuð að landinu er skipt upp í níu landsvæði. Af sjö svæðum kemur einn fulltrúi en tvö fjölmennustu svæðin skipa tvo fulltrúa hvort. Í nefndinni eiga því sæti ellefu fulltrúar. Því til viðbótar mæta á fundina stjórn félagsins, skólamálanefnd og samninganefnd. Þar er línan lögð fyrir komandi starfsár, stefnan mótuð sem og aðgerðaráætlun.