Haustbókanir Orlofssjóðs

Opnað verður fyrir haustbókanir miðvikudaginn 26. maí nk.
Miðvikudaginn 26. maí 2021 kl. 18:00 verður opnað fyrir bókanir á eignum Orlofssjóðs (OKÍ) á tímabilinu 27. ágúst 2021 - 6. janúar 2022. Reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“ gildir.
Á sama tíma verður opnað fyrir bókanir í eina nótt í eignum Orlofssjóðs sumarið 2021. Aðrar flakkaraeignir verða áfram með tveggja nátta lágmarksleigu í sumar.
Veturinn 2021-2022 verður áfram bundin helgarleiga frá föstudegi kl. 16 til sunnudags kl. 18 í orlofshúsum OKÍ á Flúðum og í Kjarnaskógi, enda hefur þetta fyrirkomulag mælst mjög vel fyrir hjá félagsmönnum.
Orlofssjóður vinnur að því að bæta framboð sitt til félagsmanna með því að festa kaup á og leigja fleiri eignir um allt land. Verið er að leggja lokahönd á nokkra samninga og verða eignir settar inn á Orlofsvefinn þegar þær eru tilbúnar til útleigu.
Orlofssjóður vill vekja athygli félagsmanna á eftirfarandi:
• Félagsmenn geta keypt ferðaávísun með afslætti til að greiða fyrir hótelgistingu víðs vegar um landið. Kort yfir gististaði sem taka við þessari ferðaávísun er hér. Ávísunina þarf að kaupa á Orlofsvefnum.
• Félagsmenn geta núna nýtt gjafabréf hjá Flugfélaginu Erni fyrir sig og maka/börn. Hægt er að kaupa gjafabréf með afslætti hjá Icelandair, Flugfélaginu Erni og Úrval-Útsýn.
• Félagsmenn geta keypt Veiðikortið og Útilegukortið á afsláttarkjörum. Sjá nánar hér.
• Félagsmenn geta sótt um niðurgreiðslu vegna gönguferða og bátsferða (ekki ferjur, t.d. Baldur og Herjólfur) á vegum viðurkennds ferðaskipuleggjanda, að hámarki 7.500 kr./15 pt. Félagsmenn þurfa að senda reikning/greiðslukvittun vegna ferðarinnar, kennitölu og númer bankareiknings á orlof@ki.is.
• Hinir vinsælu Frímannsafslættir eru í boði fyrir félagsmenn, sjá nánar hér.
Formleg sumarlokun Kennarasambandsins hefst mánudaginn 12. júlí og stendur venju samkvæmt í þrjár vikur. Skrifstofa KÍ verður opnuð á nýjan leik að morgni þriðjudagsins 4. ágúst. Hægt verður að hafa samband við Orlofssjóð á meðan á sumarlokun stendur og verða upplýsingar um það birtar þegar nær dregur á vef KÍ.
Opnað verður fyrir bókanir á tímabilinu 6. janúar til byrjun júní 2022 í byrjun september næstkomandi.