Haust í sveitinni – Námsbúðir Félags leikskólakennara

Fréttir|24. ágúst 2016

Haust í sveitinni – námsbúðir á Bifröst er yfirskrift námskeiðs sem Félag leikskólakennara efnir til í samstarfi við Háskólann á Bifröst. Með námskeiðinu gefst tækifæri til að sinna starfsþróun sinni á fallegum stað í Borgarfirði í góðum félagsskap jafningja. Markmiðið er að auka faglega og hagnýta þekkingu deildar- og sérkennslustjóra í leikskólum og efla þá sem stjórnendur á vettvangi þannig að þeir verði hæfari til að takast á við þau krefjandi verkefni sem þeim mæta í leikskólanum í dagsins önn.

Námskeiðið er sambland af fróðleik í formi fyrirlestra, hagnýtra verkefna og hópeflis.

Heildarverð fyrir námskeiðið er 57.000 kr. Athugið að hægt er að sækja um styrk í Vísindasjóð FL/FSL.

Námskeiðið fer fram á Bifröst í Borgarfirði þriðjudaginn 11. október til miðvikudagsins 12. október 2016.

Séróskir berist til simenntun@bifrost.is og allar nánari upplýsingar gefur Magnús á Bifröst netf. maggi@bifrost.is

Skráning fer fram hér

Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér.