Hátíðartónleikar Nótunnar um næstu helgi

Nótan 2024 – uppskeruhátíð tónlistarskólanna fer fram á fjórum stöðum um landið. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Uppskeruhátíð tónlistarskóla um land allt næstu helgi
NÓTAN 2024 - uppskeruhátíð tónlistarskólanna verður haldin næstu helgi með hátíðartónleikum á fjórum stöðum um landið. Tónlistarskólar landsins eru um 80 talsins og um 14.000 nemendur stunda nám innan tónlistarskólakerfisins. Tilgangur uppskeruhátíðarinnar er að beina kastljósinu að samfélagi tónlistarskóla og tónlistarnemenda með það að leiðarljósi að styrkja ungt tónlistarfólk og efla tónlistarmenntun og tónlistarlíf í samfélaginu!
Að Nótunni standa Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Samtök tónlistarskólastjóra (STS) og NÓTAN hefur verið árlegur viðburður hjá tónlistarskólunum frá árinu 2010. Hátíðin er í senn faglega hvetjandi og skemmtilegt innlegg í skólastarfið fyrir alla aðstandendur skólanna jafnt innan veggja þeirra sem utan.
Uppskeru tónlistarskóla verður fagnað á fjórum stöðum helgina 13.-14. apríl nk.
- Tónlistarskólar í Reykjavík, Kraganum og á Suðurlandi og Suðurnesjum fagna uppskeru skólaársins með þrennum Nótutónleikum í Salnum, Kópavogi, laugardaginn 13. apríl sem hefjast kl. 11:00, 13:00 og 15:00.
- Konserttónleikar Nótunnar sem haldnir eru í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit áhugamanna fara fram í sal Allegro Suzukitónlistarskólans, Langholtsvegi 109-111, laugardaginn 13. apríl kl. 10:00 og 11:00.
- Uppskerutónleikar tónlistarskóla á Austurlandi verða haldnir í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði laugardaginn 13. apríl kl. 14:00.
- Tónlistarskólar á Vesturlandi og Vestfjörðum halda sína uppskerutónleika í Tónbergi, tónleikasal Tónlistarskólans á Akranesi, laugardaginn 13. apríl kl. 14:00.
- Uppskeru tónlistarskóla á Norðurlandi verður fagnað í Menningarhúsinu Miðgarði, Varmahlíð, með hátíðartónleikum sunnudaginn 14. apríl kl. 14:00.
Ókeypis er á alla tónleika Nótunnar og allir boðnir hjartanlega velkomnir á þennan skemmtilega viðburð!