Hárrétti tíminn til að fara nýja leið

Fréttir|18. mars 2021
Pistill

Það uppnám sem orðið hefur í skólastarfi og félagslífi er hægt að nýta til góðs með því að þróa matsferil sem komi í staðinn fyrir hin hefðbundnu samræmdu próf.

Enn á ný er deilt um samræmd próf, gildi þeirra, tímasetningar og raunar tilgang. Nýir tímar kalla á breyttar aðferðir til námsmats og mistök við framkvæmd, deilur um jafna stöðu nemenda og jafnvel inntak samræmdu prófanna hafa gert þær kröfur æ háværari.

COVID-19 hefur sett allt skólastarf í uppnám en það sem verra er, faraldurinn hefur haft geigvænleg áhrif á félagslíf nemenda og gjörbreytt daglegu lífi grunnskólanema. Ekki hvað síst þegar kemur að þeim mikilvæga þætti í þroska og velferð barna og unglinga, félagsleg virkni og samskipti við jafnaldra.

Félag grunnskólakennara fagnar þeirri ákvörðun að aflýsa samræmdu prófunum í ár og bendir jafnframt á að sú einstaka staða sem uppi er í þjóðfélaginu gefur okkur tækifæri til að stokka spilin upp á nýtt. Við getum nú farið í markvissa vinnu við að innleiða breytt fyrirkomulag um þessi próf sem byggja á framtíðarsýn fyrir samræmt námsmat, en skýrsla um slíkt fyrirkomulag barst ráðherra á síðasta ári.

 

Tækifæri í uppnáminu

Það uppnám sem orðið hefur í skólastarfi og félagslífi er hægt að nýta til góðs með því að þróa matsferil sem komi í staðinn fyrir hin hefðbundnu samræmdu próf. Við getum snúið vörn í sókn og boðið grunnskólanemendum upp á betra, markvissara, sanngjarnara og hnitmiðaðra námsmat með rafrænum prófum og verkefnum, valfrelsi skóla til að nýta þau innan ákveðins ramma og dreifa þannig álagi og auka gæði alls námsmats.

Nýtum tækifærið og bætum námsumhverfið með því að gera námið einstaklingsmiðaðra og kennsluhætti fjölbreyttari.

Nú er hárrétti tíminn til að fara nýja leið.

 

Pistillinn birtist í Fréttablaðinu 18. mars 2021.