Harma frost sem einkennt hefur kjaraviðræður
Trúnaðarmenn í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) efna þessa dagana til funda með sveitarstjórnarfólki um allt land. Ástæðan er einföld, FT hefur verið án kjarasamnings síðan 1. nóvember 2015, eða í rúmt ár án þess að nýr kjarasamningur líti dagsins ljós.
Þegar hafa farið fram fundir í Árnessýslu, Rangárvallasýslu, á Seltjarnarnesi, í Garðabæ, á Hellu og fram undan eru fundir víðar, svo sem á Akureyri og í Eyjafirði.
Fjölmennt var á fundi sem kennarar í Tónlistarskóla Árnesinga efndu til síðastliðinn fimmtudag. Fundurinn, sem bar yfirskriftina Tónninn gefinn, hófst á því að Örlygur Benediktsson tónlistarskólakennari lék 85% af laginu í Hlíðarendakoti – sem lýsir kjörum tónlistarskólakennara í dag. Að loknum fundinum sendu kennarar frá sér þessa ályktun:
Ályktun frá fundi kennara Tónlistarskóla Árnesinga með sveitarstjórnarmönnum og foreldrum, sem haldinn var í Tónlistarskóla Árnesinga 17. nóvember 2016.
Kennarar Tónlistarskóla Árnesinga harma það frost sem einkennt hefur kjaraviðræður samninganefndar sveitarfélaga (SNS) við FT (Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum). Um leið lýsa kennarar yfir áhyggjum af áhrifaleysi sveitarfélaga á gang viðræðna þar sem umboðið er alfarið framselt í hendur SNS. Framganga SNS getur valdið sveitarfélögunum ómældum skaða. Ef fer sem horfir, að tónlistarskólakennarar haldi áfram að dragast aftur úr í launakjörum miðað við önnur aðildarfélög KÍ , er hætt við að þeir hverfi til annarra starfa og að það hafi áhrif og bitni á tónlistarfræðslu komandi ára. Það sem tekið hefur áratugi að byggja upp, má eyðileggja á örskotsstundu.
FT-kennarar hafa nú verið samningslausir frá 1. nóvember 2015 sem er óásættanleg staða fyrir þennan fámenna kennarahóp. Fyrir hrunárið 2008 voru laun tónlistarkennara á pari við laun annarra kennara í landinu, en FT missti úr eina kjarasamningalotu það haust. Þar við situr og hefur ekki tekist að leiðrétta launamuninn, nú átta árum síðar.
Krafa tónlistarskólakennara er hógvær, að njóta sömu launakjara og kennarar við aðrar skólagerðir.