Harma fordóma gagnvart trans börnum

Jafnréttisnefnd KÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðu í kjölfar fyrirlesturs Jordans Peterson hér á landi.
Skólar eiga að slá skjaldborg um jöfnuð, jafnrétti og velferð nemenda sinna," segir í yfirlýsingu sem Jafnréttisefnd Kennarasambands Íslands hefur sent frá sér. Tilefni yfirlýsingarinnar eru ummæli hóps kennara í kjölfar fyrirlestrar sem Jordan Peterson hélt hér í landi fyrir fjórum dögum.
„Jordan Peterson hélt fyrirlestur í Háskólabíói nýverið þar sem hann réðst harkalega að mannréttindum trans fólks. Í framhaldi af því hefur lítill hópur kennara tekið undir þennan boðskap haturs og fáfræði," segir í upphafi yfirlýsingarinnar.
Jafnsréttisnefnd KÍ harmar að alið sé á fordómum gagnvart transfólki enda skylda kennara að tryggja að skólar séu öruggur staður fyrir alla nemendur.
Yfirlýsingin hljóðar svo
Jordan Peterson hélt fyrirlestur í Háskólabíói nýverið þar sem hann réðst harkalega að mannréttindum trans fólks. Í framhaldi af því hefur lítill hópur kennara tekið undir þennan boðskap haturs og fáfræði.
Af því tilefni vill Jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands koma á framfæri athugasemd við ummæli þessa hóps. Jafnréttisnefnd KÍ harmar að alið sé á fordómum um trans börn. Skylda kennara er að tryggja að skólar séu öruggur staður fyrir öll börn og ungmenni, óháð kynvitund, kynhneigð, kyntjáningu, kyni, húðlit, uppruna, trúarbrögðum, fötlun eða annars sem gæti jaðarsett þau, siðferðislega og lagalega. Einnig er rétt að ítreka að hinsegin kennarar og starfsfólk skóla njóta sömu mannréttinda.
Skólar eiga að slá skjaldborg um jöfnuð, jafnrétti og velferð nemenda sinna. Þeir skulu stefna að réttlátum, sanngjörnum og sjálfbærum heimi. Í skólum eiga allir nemendur að fá jöfn tækifæri til þroska og vaxtar og skjól til að þroska hæfileika sína.
Fyrir hönd Jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir forkona
29. júní 2022