Harma að ekki hafi verið haft samráð við skólasamfélagið

Fréttir|1. mars 2024

Fulltrúar skólastjórnenda leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla sem áttu sæti í starfshópi um mögulegar breytingar á skólamálum í Fjarðabyggð segja sína upplifun að „samráð“ við þá hafi aðeins verið til málamynda.

Fulltrúar skólastjórnenda leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla, sem áttu sæti í starfshópi um mögulegar breytingar á skólastarfi í Fjarðabyggð, harma að ekki hafi orðið af samráði við þá og skólasamfélagið í heild áður en ákvörðun um breytingar var tekin. Þá gera þeir alvarlegar athugasemdir við að þeir fengu ekki erindisbréf vegna starfa sinna í starfshópnum, fundir voru ekki boðaðir með dagskrá og ekki voru skrifaðar fundargerðir.

Eftirfarandi tilkynning hefur borist frá fulltrúum stjórnenda í leik-, grunn- og tónlistarskólum sem sátu í starfshópi um mögulegar breytingar á skólamálum í Fjarðabyggð. 

Tilkynningin hljóðar svo:

Einn fulltrúi skólastjórnenda leikskóla, einn fulltrúi skólastjórnenda grunnskóla og einn fulltrúi skólastjórnenda tónlistarskóla sátu í starfshópi vegna mögulegra breytinga á skólamálum í Fjarðabyggð.

Framangreindir fulltrúar voru boðaðir á fjóra fundi. Lagðar voru fram mótaðar sviðsmyndir fyrir starfshópinn sem fulltrúum hópsins gafst kostur á að ræða innan hópsins. Framangreindum fulltrúum var meinað að eiga samráð við eða upplýsa aðra skólastjórnendur í sveitarfélaginu um starf hópsins. Framangreindir fulltrúar gerðu athugasemdir við sviðsmyndirnar en þær voru virtar að vettugi. Þá voru þeir hvorki boðaðir til fundar né frekara samráðs eftir að þeir gerðu athugasemdir. Upplifun framangreindra fulltrúa er sú að „samráðið“ við þá hafi aðeins verið til málamynda. Þær tillögur sem kynntar voru kjörnum fulltrúum sveitarfélagsins voru kynntar án samráðs við framangreinda fulltrúa.

Það er mat þeirra skólastjórnenda sem sátu í starfshópnum að málið hafi enn verið á umræðustigi og starfshópurinn hafi ekki lagt fram tillögur til breytinga á skólamálum í Fjarðabyggð enda málið ekki komið á það stig þegar starfshópurinn var lagður niður og nýr pólitískur hópur tók við málinu.

Fulltrúar skólastjórnenda stóðu í þeirri trú að haft yrði frekara samráð við þá sem og skólasamfélagið í heild áður en ákvörðun yrði tekin sbr. tölvupóst frá Birgi Jónssyni formanni fræðslunefndar dags. 12. desember 2023 þar sem eftirfarandi kom fram:

„Í dag fórum við Anna Marín og Laufey fyrir bæjarráð og kynntum þá vinnu sem hefur farið fram í starfshópnum þar sem hópurinn er á ábyrgð bæjarráðs. Bæjarráð þakkaði okkur fyrir þá vinnu sem hefur farið fram en ákvað að það væri komið að því að færa vinnuna yfir á næsta stig og auka pólitíska aðkomu að hópnum varðandi frekari stefnumótun byggt á þeim stóru línum sem hafa verið mótaðar hjá okkur. Það sem tekur því við núna er að pólitískt skipaður starfshópur mun móta stóru línurnar áður en frekara samráð verður haft að nýju við ykkur og aðra skólastjórnendur, starfsfólk skólanna, börn og foreldra.“

Framangreindir fulltrúar harma að ekki hafi orðið að samráði við þá og skólasamfélagið í heild áður en ákvörðun var tekin. Þá gera þeir alvarlegar athugasemdir við að þeir fengu ekki erindisbréf vegna starfa þeirra í starfshópnum, fundir voru ekki boðaðir með dagskrá og ekki voru skrifaðar fundargerðir.

 

Ekkert samráð

Skólastjórnendur grunnskóla sendu frá sér tilkynningu í gær þar sem þeir kveðast ósáttir við fyrirhugaðar breytingar á skólamálum. 

„Skólastjórnendur óttast að verði fyrirhugaðar breytingar að veruleika þá muni skólaþjónusta við grunnskólabörn skerðast og vegið verði að lögvörðum réttindum þeirra til náms," segir meðal annars í tilkynningunni. Þá segja þeir ekkert samráð hafa verið haft við skólastjórnendur eða aðra aðila skólasamfélagsins um málið," segir meðal annars í tilkynningunni. 

LESA – Skólastjórnendur ósáttir við breytingar í skólamálum – frétt 28. febrúar

 

Hvaða breytingar eru boðaðar?

Starfshópurinn hefur lagt til að grunnskólar í sex byggðakjörnum Fjarðabyggðar verði sameinaðir undir nafni Grunnskóla Fjarðabyggðar. Sama verði gert við leikskóla og tónlistarskóla. 

„Í sameinuðum grunnskóla Fjarðabyggðar verður gert ráð fyrir að grunnskólastjóri stýri hverri starfsstöð en staðan verður án kennsluskyldu. Í grunnskólanum á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði verður deildarstjóri settur yfir grunnskólann og hann þar með tekinn út úr samrekstri leik- og grunnskóla. Ekki er gert ráð fyrir að hafa aðstoðarskólastjóra né deildarstjóra sérkennslu á starfsstöðvunum," segir á vef Fjarðabyggðar. 

Þar segir jafnframt að einum skólastjóra verði falið að halda um taumana í sameinuðum tónlistarskóla og hafa með sér einn aðstoðarskólastjóra í 75% stöðu.  

Lesa um málið á vef Fjarðabyggðar.