Haraldur verður áfram formaður FL

Fréttir|12. janúar 2026
Untitled Design (67)

Haraldur F. Gíslason hefur hlotið endurkjör og verður áfram formaður Félags leikskólakennara næstu fjögur árin.

Haraldur Freyr Gíslason er sjálfkjörinn í embætti formanns Félags leikskólakennara (FL) á kjörtímabilinu 2026 til 2030. Frestur til að bjóða sig fram til formanns rann út á miðnætti aðfaranætur 12. janúar 2026.

Haraldur hefur gegnt embættinu síðan 2011.