Haraldur Freyr Gíslason sjálfkjörinn formaður FL
Fréttir|14. febrúar 2014
Haraldur Freyr Gíslason er sjálfkjörinn formaður Félags leikskólakennara næsta kjörtímabil, frá aðalfundi 2014 til aðalfundar 2017. Haraldur var einn í kjöri til formanns en frestur til að bjóða sig fram rann út 10. janúar síðastliðinn.
Haraldur hefur verið formaður FL frá árinu 2011
Samkvæmt lögum félagsins skal kjósa stjórn Félags leikskólakennara í allsherjaratkvæðagreiðslu eigi síðar en 6 vikum fyrir aðalfund sem verður haldinn í vor. Alls hafa sjö gefið kost á sér til stjórnar og verða þeir kynntir á næstunni. Í önnur trúnaðarstörf verður kosið á aðalfundinum.