Hanna Björg Vilhjálmsdóttir býður sig fram til formanns KÍ
Fréttir|12. september 2021

Hanna Björg tilkynnti framboðsnefnd KÍ þetta fyrr í dag.
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir býður sig fram í embætti formanns Kennarasambands Íslands.
Hanna Björg tilkynnti þetta í bréfi til framboðsnefndar KÍ fyrr í dag.
Hanna Björg er kennari við Borgarholtsskóla og situr í stjórn Félags framhaldsskólakennara.
Formannskjör fer fram í byrjun nóvember næstkomandi en formannskipti fara fram á þingi KÍ sem fram fer í apríl á næsta ári.