Handritaheimkomuhátíð í streymi frá Hörpu

Fréttir|25. mars 2021

Árnastofnun stýrir verkefninu Handritin til barnanna sem komið var á fót í tilefni af því að í vor verður liðin hálf öld frá því að fyrstu miðaldahandritin komu frá Danmörku.

Hægt var að senda inn handrit í handritasamkeppni á vegum Árnastofnunar og voru grunnskólanemar hvattir til að koma hugmyndum sínum í handrit, hvort sem um var að ræða texta, saumaskap/hannyrðir, myndlist eða annað. Settar voru fram leiðbeiningar og innblástur fyrir kennara á vef verkefnisins og allt gert til að gera samkeppnina spennandi og aðgengilega fyrir nemendur. 

Síðasta vetrardag, miðvikudaginn 21. apríl 2021, verður streymi beint úr Hörpu kl. 10, þar sem fram fer svokölluð handritaheimkomuhátíð. Hátíðin er hugsuð fyrir grunnskólanema og markmiðið með henni er að „færa börnunum handritin“ með því að kynna fyrir þeim mesta dýrgripinn, Konungsbók eddukvæða. Hátíðin er sett saman úr ýmsum fjörlegum atriðum þar sem þátt taka ýmsir góðkunningjar sem ekki hafa áður tengt sig við miðaldaarfinn og sögur hans. 

Kennarar og nemendur eru beðnir um að taka tímann frá og sýna nemendum streymið sem tekur rétt innan við eina kennslustund. Sama dag verða veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi handrit frá börnum. Þau handrit koma öll til álita sem Ungmennahandritið 2021 en hvaða handrit hlýtur þá nafnbót kemur í ljós á verðlaunahátíðinni Sögur í byrjun júní. 

Fleira verður á dagskrá þennan síðasta vetrardag og má þar nefna að út kemur ný barna- og fjölskyldubók um ævi og örlög Möðruvallabókar eftir Arndísi Þórarinsdóttur. Hornsteinn verður auk þess lagður að Húsi íslenskunnar sem verður áhugaverður áfangastaður skólafólks í náinni framtíð, en ráðgert er að húsið verði opnað með sýningu og aðstöðu fyrir almenning haustið 2023.