Handleiðsla sem forvörn gegn streitu og kulnun kennara

Fréttir|1. júlí 2022

Rannsóknir á handleiðslu hafa sýnt að hún getur verið góð forvörn þegar kemur að draga úr streitu og kulnun. Sveindís AnnaJóhannsdóttir, félagsráðgjafi og handleiðari, skrifar um handleiðslu frá ýmsum hliðum og hvernig hægt að stuðla að betra starfsumhverfi og meiri starfsánægju.

Það er sorgleg staðreynd að starfsfólk á sviði heilbrigðis-, félags- eða menntamála hverfur ótímabært úr sínum störfum. Sumir skipta um starfsvettvang en aðrir hverfa alfarið af vinnumarkaði. Rannsókn á kulnunareinkennum meðal grunnskólakennara sýndi að tilfinningaleg örmögnun hefur aukist frá árunum 1999 til 2018 (Sif Einarsdóttir, Regína Bergdís Erlingsdóttir, Amalía Björnsdóttir og Ásta Snorradóttir, 2019). Í rannsókn Hálfdáns Þorsteinssonar (2017) á skólastjórum kom í ljós að skólastjórar upplifa sig oft einangraða og það sé enga hjálp að fá og enginn sem hugi að sálgæslu þeirra. Samskipti við yfirvöld og skortur á stuðningi frá þeim valda aukinni streitu og álagi. Bent er á að mikilvægt sé að skoða betur líðan skólastjóra á landsvísu og tilmælum beint til Skólastjórafélags Íslands um að taka frumkvæði að stuðningi við skólastjóra.

Í skýrslu um menntun fyrir alla kemur fram að aukið álag á kennurum tengist einkum starfsumhverfi kennara, svo sem skorti á stuðningi við kennara á vettvangi, að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda og innleiða nýjar námskrár, skorti á teymisvinnu og félagastuðningi, ásamt óánægju með aðbúnað, tæki og gögn (Birna Svanbjörnsdóttir, Edda Óskarsdóttir, Hermína Gunnþórsdóttir, Laufey Petrea Magnúsdóttir og Rúnar Sigþórsson, 2019). Kristín Björnsdóttir og Eiríksína Eyja Ásgrímsdóttir (2020) rannsökuðu störf kennara í fyrstu bylgju COVID-19 heimsfaraldursins og niðurstöður benda til þess að aukið frelsi kennara varðandi skipulag kennslu og nám hafi í einhverjum tilfellum létt álagi af þeim.

Heimsfaraldurinn leiddi hins vegar í ljós mikinn aðstöðumun milli skóla og ákveðin forréttindahyggja afhjúpaðist, þar sem gert var ráð fyrir að heimilisaðstæður nemenda og kennara væru góðar. Gert var ráð fyrir að allir hefðu aðgang að tölvu og neti, byggju yfir færni og menntun, foreldrar gætu tekið við þeirri ábyrgð að sinna kennslu barna sinna, allir væru heilsuhraustir og gætu sinnt námi og kennslu. Um þriðjungur þeirra sem leita til Virk starfsendurhæfingarsjóðs eru háskólamenntaðir og þar af eru kennarar um 45%. Aðalástæðan er andlegt álag, streita, kvíði og stoðkerfisverkir og eru kennarar líklegri en aðrir háskólamenntaðir til að glíma við þessa þætti.

Dr. Ingibjörg H. Jónsdóttir (2017), forstöðumaður Streiturannsóknarstofnunar í Gautaborg og prófessor við Háskólann í Gautaborg, hefur fjallað um hversu mikilvægt það sé að starfsumhverfi fólks sé með þeim hætti að það ógni ekki heilsu þess og velferð. Einstaklingsmiðuð nálgun ein og sér nægir ekki til að koma í veg fyrir streitu eða fjarvistir vegna streitu. Áhyggjuefni er að heilsuefling á vinnustöðum er sífellt tengd einstaklingsþáttum en bætt vinnuskilyrði eru jafn mikilvæg, en þetta er að mörgu leyti nýtt viðhorf. Vinnuveitandinn er ábyrgur fyrir að skapa forsendur fyrir að starfsfólk geti unnið sín störf og staðið undir þeim kröfum sem gerðar eru til þess.

Heilsuefling á vinnustað er mikilvæg og samkvæmt lögum á vinnuveitandi að stuðla að umhverfi sem eflir heilsu og kemur í veg fyrir slys og veikindi hjá starfsfólki. Áherslubreyting um að bæta vinnuskilyrði mun taka tíma og krefst að sama skapi hugrekkis og þolinmæði. Þetta stafar meðal annars af því að þeir þættir eru minna þekktir og aðferðirnar nýjar og flóknar. Heilsuefling á vinnustöðum er sameiginlegt verkefni vinnuveitenda og starfsmanna. Starfsmenn bera ábyrgð á eigin heilsu og því að vera í stakk búnir að vinna þá vinnu sem ætlast er til af þeim. Vinnuveitandinn er að sama skapi skyldugur til að skapa forsendur fyrir því að fólk geti unnið það starf sem ætlast er til.

 

Handleiðsla og starfstengd leiðsögn

Rannsóknir á handleiðslu hafa sýnt að handleiðsla er góð forvörn gegn streitu og kulnun þar sem hún stuðlar að minni streitu, aukinni starfsánægju, stöðugleika í starfsmannahaldi, tryggð við vinnustað og betri gæðum í þjónustu, enda er handleiðsla skilgreind sem aðferð til að efla fagmennsku, vernda fagmanninn og tryggja gæði þjónustu (Sigrún Júlíusdóttir, 2000).

Einn mikilvægur stuðningsþáttur í starfi er þegar reyndir kennarar annast starfstengda leiðsögn til kennaranema og nýliða í starfi kennara með það að markmiði að efla starfshæfni og fagmennsku einstaklinga, hópa og stofnana (Ragnhildur Bjarnadóttir, 2020). Margt er líkt með handleiðslu og starfstengdri leiðsögn en um leið eru einnig þættir sem greina á milli og því ættu bæði þessi formlegu stuðningskerfi að geta nýst kennurum og öðru fagfólki á öllum skólastigum.

 

Félagsleg vinnuvernd

Að leita „hjálpar fyrir hjálparann“ er ekki veikleiki heldur þvert á móti styrkleiki, segir Alma D. Möller landlæknir í aðfararorðum sínum í nýlegri bók um handleiðslu (2020). Magnús Þór Jónsson, skólastjóri og verðandi formaður Kennarasambands Íslands, kallar eftir aðgerðum strax til að vernda kennara gegn streitu og kulnun í starfi í grein sinni er birtist á Vísi 17. október sl. Til að snúa vörn í sókn þarf að vinna markvisst að því að bæta starfsumhverfi kennara og þar bera skólastjórnendur, sveitarfélög og menntamálaráðuneytið ríka ábyrð í samvinnu við starfsmenn.

Heilsuefling á vinnustað er mikilvæg og samkvæmt lögum á vinnuveitandi að stuðla að umhverfi sem eflir heilsu og kemur í veg fyrir slys og veikindi hjá starfsfólki.

Samkvæmt vinnuverndarlögum nr. 46/1980 ber atvinnurekandi ábyrgð á að gerð sé skrifleg áætlun, sem byggir á áhættumati, um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Markmiðið er að stuðla að öryggi og heilbrigði starfsfólks og koma í veg fyrir heilsutjón vegna vinnunnar eða vinnuumhverfisins. Mat á áhættu skal ná til allra þeirra þátta í vinnuumhverfinu sem geta haft áhrif á heilsu og öryggi. Sérstaklega skal litið til starfa þar sem fyrirsjáanlegt er að heilsu og öryggi starfsfólks sé hætta búin.

Við gerð áhættumats skal meðal annars skoða félagslega og andlega vinnuverndarþætti (samskipti, upplýsingaflæði, tímaþröng, einelti o.s.frv). Einnig þarf að skoða umhverfisþætti (hávaði, lýsing og birtuskilyrði, hiti, kuldi, titringur, dragsúgur, smitleiðir o.fl.) auk fleiri þátta. Vinnueftirlitið hefur útbúið vinnuumhverfisvísi til að meta félagslegt vinnuumhverfi þannig að nokkuð auðvelt ætti að vera að gera könnun á landsvísu til að meta stöðuna og móta aðgerðaáætlun í hverjum skóla út frá niðurstöðum.

 

Handleiðsla til eflingar í starfi – vinnuvernd – fagvernd – mannvernd

Árið 2020 kom út bókin Handleiðsla til eflingar í starfi þar sem í undirtitli eru orðin vinnuvernd, fagvernd og mannvernd sem gefa tóninn um efni bókarinnar. Í bókina skrifa alls 17 sérfræðingar af ólíkum sérsviðum en af menntasviði má nefa sérstaklega kafla Jónínu Ó. Kárdal sem er náms- og starfsráðgjafi við Háskóla Íslands, Kristínar Lilliendahl sem er aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Ragnhildar Bjarnadóttur, fyrrverandi dósents við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, og Sifjar Einarsdóttur, prófessors í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands (Sigrún Júlíusdóttir, 2020).

Handleiðsla er ekki öll steypt í sama mót og það eru til nokkrar tegundir af handleiðslu og viðmið um hvaða þættir það eru sem hafa áhrif á val tegundar hverju sinni. Til að handleiðsla beri árangur þarf hún að vera vikulega eða hálfs mánaðarlega og aldrei sjaldnar en á 4-6 vikna fresti - og það á einungis við þá sem mælast með enga streitu en nýta handleiðslu sem forvörn og faglega starfsþróun.

Helstu tegundir handleiðslu eru:

  • Einstaklingshandleiðsla (oft nefnd ferilsmiðuð handleiðsla)
  • Hóphandleiðsla
  • Teymishandleiðsla
  • Jafningjahandleiðsla
  • Stjórnunarhandleiðsla
  • Handleiðsla á handleiðslu
  • Fjarhandleiðsla


Þessar mismunandi tegundir er hægt að nýta markvisst til að styðja við kennara og stuðla að forvörnum gegn streitu og kulnun en ekki síður til að efla eigin áhrifamátt og fagþekkingu í starfi. Handleiðsla virkar best ef þetta tvennt fer saman (Sveindís Anna Jóhannsdóttir, 2020).

Í handleiðslu eru oft nýttir staðlaðir matskvarðar sem meta streitu og kulnun hjá einstaklingum og það er til útgáfa af Starfskulnunarlista Maslach sem er sérsniðin að kennurum. Klínísk reynsla mín gefur vísbendingar um að fagfólk byrji of oft í handleiðslu þegar alvarleg einkenni starfsþreytu/streitu og kulnunar eru orðin augljós en þá er handleiðslan ekki sú forvörn sem hún getur verið heldur viðbragð og hluti af meðferð við sjúklegu ástandi.

Ef vinnustaðir vilja vera til fyrirmyndar þá gera þeir úttekt á sínu starfsumhverfi og umbótaáætlun í kjölfarið til að bregðast við því sem betur má fara. Ef stuðningur við kennara er hugsaður frá upphafi starfsferils má hugsa sér að kennaranemar og nýútskrifaðir kennarar nýti sér starfstengda leiðsögn sem fyrsta skref. Næsta skref gæti verið stjórnunarhandleiðsla í eitt ár þar sem áfram væri unnið að þroska og þróun innan stofnunar en áherslur væru á verkferla og samskipti við nemendur, foreldra og samstarfsfólk. Eftir það tæki við einstaklingshandleiðsla sem væri ferilsmiðuð og næði yfir þrjú misseri. Þessi tegund handleiðslu er ætluð reyndu og fullnuma fagfólki.

 

Að efla eigið fagsjálf og fagmennsku

Hér er æskilegt að fagfólk fái nokkuð frjálst val um að velja sér handleiðara utan stofnunar en þó með þeim skilyrðum, til að tryggja gæði, að handleiðari sé í Handleiðslufélagi Íslands. Markmið handleiðslunnar er að veita sem besta og faglegasta þjónustu ásamt því að átta sig á því hvernig eigin skoðanir og lífsreynsla hafa áhrif á starfið. Áherslan í handleiðslunni er á að efla eigið fagsjálf og fagvitund auk þess að setja heilbrigð mörk. Með því að brýna sig sem verkfæri og efla þannig fagmennsku og fagleg vinnubrögð virkar handleiðslan sem forvörn gegn streitu og kulnun í starfi. Þegar einstaklingshandleiðslu er lokið skapast forsendur til að nýta sér hóphandleiðslu og þá síðar mögulega jafningjahandleiðslu sem ætluð er fagfólki sem á að baki töluverða reynslu af handleiðslu og hefur lokið í það minnsta þriggja anna handleiðsluferli.

Í hóphandleiðslu reynir á þætti eins og að þola samkeppni, þróa hæfileika til að vinna í hópi og fleira sem ekki reynir á í einstaklingshandleiðslu. Jafningjahandleiðsla getur verið einstaklings- eða hóphandleiðsla en nauðsynlegt er að hún hafi formlegan ramma eins og öll önnur handleiðsla. Fjarhandleiðsla getur verið góður kostur á margan hátt og svo sannarlega betri en engin handleiðsla. Best er þó að hafa verið í handleiðslu auglitis til auglitis í einhvern tíma áður en skipt er yfir í fjarhandleiðslu.

Áherslan í handleiðslunni er á að efla eigið fagsjálf og fagvitund auk þess að setja heilbrigð mörk.

Mikilvægt er að öll handleiðsla sé skipulögð út frá þörfum og mati á stöðu einstaklinga og hópa en ekki út frá efnahagslegum forsendum eða tímaskorti (Hawkins og Sohet, 2012). Við upphaf starfsferils er nauðsynlegt að hlúa vel að kennurum og starfstengd leiðsögn hefur þróast í takt við þarfir nýrra kennara. Síðan kemur handleiðslan inn og gott er að hafa í huga að það er ekki nauðsynlegt að vera alltaf í handleiðslu. Þegar þriggja missera einstaklingshandleiðslu er lokið er fyllilega eðlilegt að taka hlé og endurmeta hvers konar handleiðsla sé næsta skref og hvenær.

Það er von mín að þessi orð sem skrifuð eru hér veiti kennurum, skólastjórnendum, sveitarstjórnum, mennta- og barnamálaráðuneyti og öðrum þeim sem láta starfsumhverfi, heilsu og líðan kennara og skólastjórnenda sig varða innsæi í hvernig hægt er að bregðast strax við, spyrna af öllu afli við ótímabæru brotthvarfi kennara og skólastjórnenda af vinnumarkaði og byggja upp þann mannauð sem í skólakerfinu býr.

 

Grein Sveindísar Önnu birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2022.