Handbók kennara
Fréttir|16. ágúst 2016
Ár hvert gefur Kennarasambandið út Handbók kennara og sendir félagsmönnum sínum. Handbókin var send á félagsmenn í leik- og tónlistarskólum í sumar og í gær hóf Pósturinn vinnu við að dreifa bókinni til grunn- og framhaldsskóla.
Við viljum biðja félagsmenn um að sýna því biðlund ef bókin hefur ekki enn borist. Hinsvegar má gjarnan hafa samband við skrifstofu Kennarasambandsins í Kennarahúsinu á fimmtudag hafi bókin ekki skilað sér. Síminn á skrifstofunni er 595-1111 og netfangið er ki@ki.is