Handbók grunnskólakennara er komin út

Verið er að pakka handbókinni og senda út samkvæmt þeim pöntunum sem hafa borist. Þeir sem ekki hafa pantað eintak geta haft samband við trúnaðarmann í viðkomandi skóla og fá þá bókina senda.
Félag grunnskólakennara gefur nú annað árið í röð út Handbók grunnskólakennara. Verið er að pakka handbókinni og senda út samkvæmt þeim pöntunum sem hafa borist. Þeir sem ekki hafa pantað eintak geta haft samband við trúnaðarmann í viðkomandi skóla og fá þá bókina senda.
„Handbókin gagnast okkar félagsmönnum vel og ljóst að þörfin er töluverð. Þetta er skemmtilegt verkefni sem við viljum halda á lofti enda auðveldar handbókin kennurum að skipuleggja skólaárið og halda utan um verkefnin. Nú erum við á fullu að koma út 2.500 bókum í skólana,“ segir Þorgerður L. Diðriksdóttir, formaður FG, sem var á fullu að pakka handbókinni í Kennarahúsinu í dag.